gstuning wrote:Angelic0- wrote:
En ábyrgist seljandi að ruslið hrynji ekki í fyrsta run ?
Ábyrgðir fylgja nýjum hlutum, allt annað ekki. Ágætt að muna það svona fram í lífsleiðina.
Þetta er nú ekki rétt.
Við kaup og sölu lausafjármuna er hægt að fá viðskiptum rift ef sýna má fram á galla viðkomandi vöru. Það breytir engu hvort hlutur sé nýr eða notaður. Kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa tekur á viðskiptum með t.d. notaða bíla sem síðar hrynja og ágreiningur verður um hver á að bera ábyrgð á biluninni.
Þannig að það er ábyrgð á notuðum hlutum as in að það er hægt að fá viðskiptum rift komi upp vandamál, og það má leiða líkum að sama gildi um þetta verðmæta dót.
Linkur á nefndina:
http://www.neytendastofa.is/um-okkur/kaerunefnd-lausafjar--og-thjonus/



