Þetta er nú ekki flókið með E32 framstuðara, þegar V8/V12 hornin eru þá eru hornin af stuðaranum sjálfum skorin í burt orginal, sem tekur allan styrk úr stuðaranum þannig að það þarf ekki mikið til að svona gerist.
Þeir löguðu þetta síðan í E34 með því að skera bara göt á hornin í stuðarönum og meira að segja setja járn styrkingar fyrir innan sem hornin festast á, þannig þetta vandamál er ekki til staðar þar.
Það ætti alveg að vera hægt að útfæra þetta þannig fyrir E32 líka, með smá föndri.












