e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Svenni Litli » Fri 12. Oct 2012 16:47

BMW 520i E39 03/1999 með 13 skoðun

Svo er mál með vexti að bíllinn titra mjög mikið þegar ég bremsa. Þegar ég bremsa fast titrar hann ekki jafn mikið og þegar ég bremsa laust.
Hann semsagt titrar meira ef ég bremsa laust.

Það sem ég er búið er að gera:
Nýjir bremsudiskar
Fór með hann á skoðunarstöð og lét þá tjékka á öllum spyndilkúlum, hjólalegum, fóðringum og öllu mögulegu sem gæti tengst þessu og allt í góðu þar.
Fór með hann uppí eðalbíla og lét þá prófa bílinn og athuga með þetta, en þeir mældu með því að fara með hann á skoðunarstöðina.
Fór með hann úppí tækniþjónustu bifreiða og þeir prófuðu bílinn og kíktu undir hann en fundu ekki neitt.
Lét balansera felgurnar og keypti ný dekk.

Ég ætla núna í kvöld að taka dælurnar af og skoða þetta nánar, hreinsa bakvið diskinn ( ég skipti ekki um diskana, kaupi bílinn með glansandi bremsudiskum) og skoða þetta nánar. Tók eftir því líka þegar ég var á dekkjaverkstæðinu að bremsudæluhúsið var aðeins laust báðumeginn, gat s.s. aðeins hreyft dæluhúsið með hendinni en ekki mikið, er það eðlilegt?


Þetta semsagt byrjaði rólega og er núna í hámarki, efast um að nokkur bíll hristist meira þegar bremsað er. Tek aftur fram að hann titrar bara svona mikið þegar það er bremsað rólega á 90/100 km/h en hann titrar minna þegar ég negli á bremsuna. Það eru engin aukahljóð kominn ennþá 1,9,13 í kjölfar hristingsins.

Ég vildi bara athuga hvort einhver kannist við þetta og gæti sagt mér hvað þetta gæti verið. Ég undir strika það sem maðurinn í TB sagði "þetta er mjög skrítið".

Með fyrirfram þakkir Sveinn Jónsson
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby eiddz » Fri 12. Oct 2012 19:19

Hjólastilling?
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby sosupabbi » Fri 12. Oct 2012 19:48

Bremsudælurnar eiga ekki að vera lausar, svo getur verið að þegar að bremsudiskaskiptin voru gerð að það hafi ekki verið hreinsað nógu vel bakvið þá, það getur ollið svona hristing hef ég heyrt.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Navigator » Fri 12. Oct 2012 20:22

Hugmynd hvort felgurnar séu með einhverjum spacerum/hringjum bakvið og hafi gleymst að setja við síðustu skipti, amk var það lýsingin á titringi á BMW bróður míns.

Amk athuga það þegar hjólin eru tekin undan og bremsudælurnar hertar fastar ;)
Jón Ingi
s. 692 1212
Navigator
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Thu 28. Jul 2011 13:34

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby bjarkibje » Fri 12. Oct 2012 23:17

dekk? skakkar felgur? skakkur bremsudiskur?
BMW E46 330d [SS-011]
User avatar
bjarkibje
Getawaybílstjóri
 
Posts: 740
Joined: Tue 11. Aug 2009 10:37

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Danni » Sat 13. Oct 2012 06:38

Spyrnufóðringar! Man þegar ég átti E39 í denn þá hagaði annar þeirra sér akkurat svona. Hafði einmitt ekkert að segja að skipta um bremsudiska. Lét umboðið skipta um spyrnufóðringar og bíllinn varð eins og draumur í akstri eftir það :D
Last edited by Danni on Sun 14. Oct 2012 01:43, edited 1 time in total.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby IvanAnders » Sat 13. Oct 2012 08:40

Ertu að skoða bremsurnar allan hringinn?

Titrar stýrið með? Getur þetta verið að aftan?

Ef það er í lagi með spyrnufóðringarnar, farðu þá og láttu renna diskana!

Nýjir diskar geta skekkst eins og aðrir, og jafnvel komið smá skakkir, þýðir ekki að útiloka þá alveg þó þeir séu nýjir.
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby íbbi_ » Sat 13. Oct 2012 14:32

þegar ég kaupi bílin núna í sept þá titraði hann svona, ég reif úr honum hálfslitna diska og nýlega klossa og setti diskana og klossana sem eru í honum núna í. það var í byrjun sept,

hjá mér var hann að titra örlítið í kringum 80kmh og þegar maður bremsaði laust, en titraði ekki ef maður bremsaði vel,

hann snarhætti þessu þegar ég skipti um diskana/klossana, skrítið að þetta sé komið aftur. ég keypti hann með þessum tritring og fyrri eigandi sagði að hann hafi titrað svona og hann skipt um klossa og það hafi ekki lagast.

bíllinn var ekinn 199þús þegar ég skipti um þetta,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Svenni Litli » Sat 13. Oct 2012 21:37

Bíllinn er kominn í 202þ núna... en það er í góðu með hjólastillinguna, hann er ekki að leita í neina átt né að misslíta dekkjunum miðað við gömlu dekkin. Alveg þráðbeinn í keyrslu. Það er búið að útiloka alla diska og já þetta kemur að framan. Allt í góðu að framan.
En takk kærlega ég ætla að kíkja á þessa spyrnufóðringu, mig einmitt grunar að þetta sé hún. Ætla að prófa að skipta þær báðar.

Takk kærlega fyrir skjót svör.
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Axel Jóhann » Sat 13. Oct 2012 22:41

Ég get græjað það fyrir þig ef þú villt, símanúmer er hér að neðan. ;)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Orri Þorkell » Sun 14. Oct 2012 11:39

Axel er nýbúinn að redda nákvæmlega þessu í mínum E39, lýsti sér nákvæmlega eins (spyrnur), topp vinnubrögð og eldsnöggur 8)
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Svenni Litli » Sun 14. Oct 2012 17:01

verð í bandi við þig Axel þegar ég er kominn með varahlutinn í hendurnar :)
Súbbi vetrar
BMW E36 [PK108]
BMW E39 [OX787] seldur
Svenni Litli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 69
Joined: Fri 24. Oct 2008 22:30

Re: e39 520 hristist þegar bremsað!? HJÁLP

Postby Axel Jóhann » Sun 14. Oct 2012 19:37

Aight
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests