BMW 520i E39 03/1999 með 13 skoðun
Svo er mál með vexti að bíllinn titra mjög mikið þegar ég bremsa. Þegar ég bremsa fast titrar hann ekki jafn mikið og þegar ég bremsa laust.
Hann semsagt titrar meira ef ég bremsa laust.
Það sem ég er búið er að gera:
Nýjir bremsudiskar
Fór með hann á skoðunarstöð og lét þá tjékka á öllum spyndilkúlum, hjólalegum, fóðringum og öllu mögulegu sem gæti tengst þessu og allt í góðu þar.
Fór með hann uppí eðalbíla og lét þá prófa bílinn og athuga með þetta, en þeir mældu með því að fara með hann á skoðunarstöðina.
Fór með hann úppí tækniþjónustu bifreiða og þeir prófuðu bílinn og kíktu undir hann en fundu ekki neitt.
Lét balansera felgurnar og keypti ný dekk.
Ég ætla núna í kvöld að taka dælurnar af og skoða þetta nánar, hreinsa bakvið diskinn ( ég skipti ekki um diskana, kaupi bílinn með glansandi bremsudiskum) og skoða þetta nánar. Tók eftir því líka þegar ég var á dekkjaverkstæðinu að bremsudæluhúsið var aðeins laust báðumeginn, gat s.s. aðeins hreyft dæluhúsið með hendinni en ekki mikið, er það eðlilegt?
Þetta semsagt byrjaði rólega og er núna í hámarki, efast um að nokkur bíll hristist meira þegar bremsað er. Tek aftur fram að hann titrar bara svona mikið þegar það er bremsað rólega á 90/100 km/h en hann titrar minna þegar ég negli á bremsuna. Það eru engin aukahljóð kominn ennþá 1,9,13 í kjölfar hristingsins.
Ég vildi bara athuga hvort einhver kannist við þetta og gæti sagt mér hvað þetta gæti verið. Ég undir strika það sem maðurinn í TB sagði "þetta er mjög skrítið".
Með fyrirfram þakkir Sveinn Jónsson





