Fékk mér þennan E39 í fyrra. Bíllinn þurfti þó smá ást fyrst, var á 15" stálfelgum og fullt sem að þurfti að gera. Hafði alltaf ætlað mér að gera þráð. Betra er seint en aldrei.
Þetta er sumsé E39 523IA, framleiddur í Október 1996. Ég er sjöundi eigandi af bílnum á Íslandi, bíllinn var innfluttur í Janúar 2000, þess má geta að einungis tveir eigendur voru frá 2001 til 2011. Bíllinn er frekar vel búinn að mínu mati.
Hér kemur fæðingarvottorðið...
Quote:
Order Options:
No. Description
280 LT/ALY WHEELS SPOKE STYLING
305 REMOTE CONTROL FOR CENTRAL LOCKING
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
428 WARNING TRIANGLE
438 WOOD TRIM
441 SMOKERS PACKAGE
459 SEAT ADJUSTM., ELECTR. W. MEMORY
464 SKIBAG
494 SEAT HEATING F. DRIVER/FRONT PASSENGER
500 HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING
522 XENON LIGHT
534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING
540 CRUISE CONTROL
555 ON-BOARD COMPUTER
628 COMMUNICATION PACKAGE
629 CAR TELEPHONE (GSM) W CARD READER FRONT
801 GERMANY VERSION
863 EUROPE/DEALER DIRECTORY
879 GERMAN/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET
915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION
Standard Equipment:
No. Description
260 SIDE AIRBAG DRIVER/FRT PASSENGER
473 ARMREST, FRONT
520 FOGLIGHTS
548 SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING
665 RADIO BMW BUSINESS
Það sem ég veit að hafði verið gert áður en ég eignast bílinn var m.a. eftirfarandi:
- Facelift framljós.
- Nýr MAF Skynjari - Maí 2011
- Nýr knastásskynjari. - Maí 2011
- Nýr sveifarásskynjari. - Maí 2011
- Nýr rafgeymir. - Maí 2011
- Nýr vatnskassi.
Það sem var fyrst að var að angra mig var að bíllinn hélt stöðugt að bílstjórahurð væri hálf opin. Svo voru nokkrar meldingar sem komu upp, m.a. "Check Coolant Level" stöðugt, þrátt fyrir að nægur kælivökvi væri á kerfinu. "Check Brake Linings" og "Check Brake Lights".
Til að koma því í lag, gerði ég eftirfarandi..
- Skipta út kælivökva á kerfi.
- Skipta um krækju fyrir læsingu bílstjóramegin
- Skipta um vatnskassarofa
- Skipta um tengil fyrir bremsuljós í afturglugga.
- Vír slitinn í sundur á bremsukl. skynjara að aftan - Nýr skynjari settur í.
Verslaði mér svo líka OEM 16" Style 33 á Vetrardekkjum.
Tók svo stuttu seinna alla innréttinguna í gegn, öll sæti úr og djúphreinsaði teppið.
Svo kom að ýmislegu viðhaldi, og atriðum sem ég vildi lagfæra.
- Skipta um hægagangs strekkjara (Mechanical Belt Tensioner).
- Skipta um olíu + síu á sjálfskiptingu hjá eðalbílum.
- Skipta um bensínsíu.
- Skipta um öndunarslöngu í membru.
- Skipta um jafnvægisstangarenda báðum megin að framan.
- Skipta um jafnvægisstangarenda báðum megin að aftan.
- Skipta um ventlalokspakkningu.
- Laga leka frá stýrisvökva forðabúri.
- Laga park á rúðuþurrkum. - Rúðuþurrkur miðuðu upp.
- Liðka til húddbarka.
- Laga varadekksfelgu (skökk).
- Skipta um innri og ytri stýrisenda b/m. 16. Maí 2012
- Skipta um hjólalegu bílastjóramegin að framan. 16. Maí 2012
- Skipta um bremsudiska og bremsuklossa að framan. - 16. Maí 2012
- Nýr hvarfakútur settur í. - 22. Maí 2012
- Bilanagreining hjá BL. - 24. Maí 2012
- Nýr Pústskynjari í bank #2 / Skipt um hjá BL. - 24. Maí 2012
- Ný kerti. - Skipt um 26. Maí 2012
- Fara með bíl í skoðun. - Athugasemdalaus skoðun - 28. Júní 2012
- Hjólastilling. - Júlí 2012
- Versla tappa ofan á hlíf fyrir vél.
- Var farinn að heyra skrölt frá pústkerfi - Kom í ljós að nýji hvarfakúturinn sem settur var í 22. Maí var dæmdur ónýtur. Nýr hvarfakútur var því settur í 24. Júlí.
Nokkrir hlutir inní bíl, og að utan sem þurfti svo að kippa í lag:
- Viðar panel í miðjustökk tekinn af og massaður - var virkilega mattur.
- Laga miðstöðvar grill í miðjustökk afturí.
- Skipta um fóthvílu bílstjóramegin.
- Nýjir miðstövartakkar / gömlu brotnir af. - Skipt um 29. Maí 2012
- Nýjar taumottur úr umboði. - 1. Júní 2012
- Versla hólf í miðjustokk afturí. - 21. Júlí
- Versla beltisspennara - Virkar ekki að spenna belti farþegamegin aftur í bíl. - 21. Júlí
- NÝTT handfang að utan á bílstjórahurð - Skipt um 28. Júní 2012 (Gamla brotnaði af við að opna hurðina).
- Versla takka til að opna skott. - 21. Júlí (Gamli takkinn var molbrotinn).
Vildi svo fullkomna verkfærasettið, verslaði því eftirfarandi sem vantaði í það.
- Skrúfjárn í verkfærasett.
- Töng í verkfærasett.
Svo þetta útlitstengda.
- Ný BMW merki. - 22. September 2011
- LED í Angel Eyes. - 5. Október 2011
- Facelift nýru. - 26. Maí 2012
- Versla glær stefnuljós í bretti. - 21. Maí 2012
- 18" OEM E38 M-Parallel (8" og 9.5"). - 1. Júní 2012
Kannski frekar overwhelming listi.. en vonandi hefur eitthver gaman af því að fara yfir þetta, ætla reyna vera duglegri að henda hér inn því sem maður er að gera og græja..
Svo tók Bergsteinn (ROCKY) myndir fyrir mig, hér koma þær, þakka honum kærlega fyrir..






