Davíð gunga og drusla :)

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby BMW3 » Sun 16. May 2004 02:10

ég er alveg sammála force, að mínu mati þá er Dabbi (Davíð Oddsson) skíthæll sem ætti að stilla upp við vegg og skjóta, hann er búinn að fara ílla með marga og mér alveg nákvæmlega sama þótt hann sé skyldur mér ég segji bara mína meiningu mér fannst þetta bara mjög gott hjá Seingrími að segja þetta.
Hell was full so i came back!
BMW3
Bannaður
 
Posts: 526
Joined: Mon 15. Sep 2003 16:31
Location: Reykjavík

Postby fart » Sun 16. May 2004 09:47

ég er alveg sammála force, að mínu mati þá er Dabbi (Davíð Oddsson) skíthæll sem ætti að stilla upp við vegg og skjóta, hann er búinn að fara ílla með marga og mér alveg nákvæmlega sama þótt hann sé skyldur mér ég segji bara mína meiningu mér fannst þetta bara mjög gott hjá Seingrími að segja þetta.


WTF! er ekki í lagi með þig.... ert þú sama mannvitsbrekkan og þessi Svali FM-hnakki?[/code]
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Schulii » Sun 16. May 2004 11:59

Já það er gaman að sjá málflutninginn hjá sumum sem eru ekki hrifnir af Davíð. Gerir lítið annað en að sannfæra mig enn betur um að ég sé réttu megin við strikið miðað við mínar hugsjónir í það minnsta.

Ja, hart mætir hörðu segi ég nú bara. Í mínum huga er það alveg ljóst að fjölmiðlar í eigu Baugs hafa verið að beita áróðri gegn stjórninni og Davíð persónulega. Mér finnst þetta í raun hafa byrjað þegar Davíð minntist á það sem Hreinn Loftsson sagði við hann um ummæli Jóns Ásgeirs. Þ.e.a.s þegar hann talaði um 300 milljónirnar sem Jón Ásgeir átti að hafa sagt í hálfkæringi að hann vildi láta Davíð hafa fyrir að láta þá í friði.

Eftir það keypti Baugur fréttablaðið, DV, Stöð 2, Bylgjuna, X-ið, Sýn, Bíórásina, Létt 96.7, Effemm 95.7 og bara meirihlutann af fjölmiðlaflórunni á íslandi. Allavega fæ ég það á tilfinninguna að Jón Ásgeir hafi tapað sér og bara ákveðið að ná sér niðri á Davíð og beita til þess öllum brögðum. Alveg síðan þetta viðtal við Davíð var á Rás 2 hefur þetta bara aukist jafnt og þétt.

Fjölmiðlar eru mjög öflugt vopn sem auðvelt er að misnota. Mér finnst eins og það sé búið að vera að beita þeim núna gegn Davíð og mér finnst ekkert einu sinni verið að reyna að fela það. Mér finnst þessi blaðamennska alltaf reyna að spila inná grunnhyggju og einfeldni fólks til að reyna að draga upp einhverja reiði og andúð. Í staðinn fyrir að það sé einfaldlega verið að segja fréttir þá finnst mér alltaf vera komið inní orðin einhverskonar kaldhæðni og reynt að hafa áhrif á hvaða skoðun ég eigi að hafa á málinu. ÞAÐ ER BARA ÁRÓÐUR.

En það er auðvitað tjáningarfrelsi á íslandi þannig að aðalástæðan fyrir þessu fjölmiðlafrumvarpi er ekki að það sé verið að tala illa um stjórnina og Davíð heldur að það er að myndast hér ástand sem getur í besta falli verið álitið "óheppilegt". Og þá ekki fyrir stjórnmálamenn heldur fyrir okkur almenning. Í mínum huga er það alveg ljóst að miðað við það hvernig ég hef séð þessum fjölmiðlum beitt í þessu máli að þá muni sömu aðilar ekki hika við að nota þessa tækni til að koma höggi á viðskiptasamkeppnisaðila sína sem mun hægt en örugglega stuðla að fákeppni á markaðnum. Og það á ansi mörgum sviðum. Baugur á meira en margann grunar. Persónulega þá finnst mér kannski að það sé í lagi að ég kaupi matinn, fötin, bensínið og allt sem ég nota í daglegu lífi af Baug. En að þeir séu færir um að forrita viðhorf mín og skoðanir með hjálp fjölmiðla?? NEI TAKK!!!!

Ég segi bara að þrátt fyrir að það sé skítalykt af mörgu sem þessi stjórn hefur gert þá styð ég hana 100% í þessu máli og styð Davíð Oddsson algjörlega.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Sun 16. May 2004 12:29

Schulii wrote:Já það er gaman að sjá málflutninginn hjá sumum sem eru ekki hrifnir af Davíð. Gerir lítið annað en að sannfæra mig enn betur um að ég sé réttu megin við strikið miðað við mínar hugsjónir í það minnsta.

Ja, hart mætir hörðu segi ég nú bara. Í mínum huga er það alveg ljóst að fjölmiðlar í eigu Baugs hafa verið að beita áróðri gegn stjórninni og Davíð persónulega. Mér finnst þetta í raun hafa byrjað þegar Davíð minntist á það sem Hreinn Loftsson sagði við hann um ummæli Jóns Ásgeirs. Þ.e.a.s þegar hann talaði um 300 milljónirnar sem Jón Ásgeir átti að hafa sagt í hálfkæringi að hann vildi láta Davíð hafa fyrir að láta þá í friði.

Eftir það keypti Baugur fréttablaðið, DV, Stöð 2, Bylgjuna, X-ið, Sýn, Bíórásina, Létt 96.7, Effemm 95.7 og bara meirihlutann af fjölmiðlaflórunni á íslandi. Allavega fæ ég það á tilfinninguna að Jón Ásgeir hafi tapað sér og bara ákveðið að ná sér niðri á Davíð og beita til þess öllum brögðum. Alveg síðan þetta viðtal við Davíð var á Rás 2 hefur þetta bara aukist jafnt og þétt.

Fjölmiðlar eru mjög öflugt vopn sem auðvelt er að misnota. Mér finnst eins og það sé búið að vera að beita þeim núna gegn Davíð og mér finnst ekkert einu sinni verið að reyna að fela það. Mér finnst þessi blaðamennska alltaf reyna að spila inná grunnhyggju og einfeldni fólks til að reyna að draga upp einhverja reiði og andúð. Í staðinn fyrir að það sé einfaldlega verið að segja fréttir þá finnst mér alltaf vera komið inní orðin einhverskonar kaldhæðni og reynt að hafa áhrif á hvaða skoðun ég eigi að hafa á málinu. ÞAÐ ER BARA ÁRÓÐUR.

En það er auðvitað tjáningarfrelsi á íslandi þannig að aðalástæðan fyrir þessu fjölmiðlafrumvarpi er ekki að það sé verið að tala illa um stjórnina og Davíð heldur að það er að myndast hér ástand sem getur í besta falli verið álitið "óheppilegt". Og þá ekki fyrir stjórnmálamenn heldur fyrir okkur almenning. Í mínum huga er það alveg ljóst að miðað við það hvernig ég hef séð þessum fjölmiðlum beitt í þessu máli að þá muni sömu aðilar ekki hika við að nota þessa tækni til að koma höggi á viðskiptasamkeppnisaðila sína sem mun hægt en örugglega stuðla að fákeppni á markaðnum. Og það á ansi mörgum sviðum. Baugur á meira en margann grunar. Persónulega þá finnst mér kannski að það sé í lagi að ég kaupi matinn, fötin, bensínið og allt sem ég nota í daglegu lífi af Baug. En að þeir séu færir um að forrita viðhorf mín og skoðanir með hjálp fjölmiðla?? NEI TAKK!!!!

Ég segi bara að þrátt fyrir að það sé skítalykt af mörgu sem þessi stjórn hefur gert þá styð ég hana 100% í þessu máli og styð Davíð Oddsson algjörlega.


Sammála, ég styð þetta frumvarp 100% en er orðin verulega þreyttur á Dabba!

En svo er málið bara það að þetta er orðið að stéttabaráttu blaðamanna Norðurljósa og fjölmiðlarnir eru misnotaði á hverri klukkustund í þeirri baráttu.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Lindemann » Sun 16. May 2004 12:40

mér finnst best þessi ummæli Davíðs um að forsetinn sé vanhæfur til að neita að skrifa undir þessi lög.... en er hann þá hæfur til þess að skrifa undir þau :?: :shock:
ef hann neitar að skrifa undir lögin, þá er það ekkert stórmál.. þá fáum við, þjóðin, bara að ráða hvort þessi lög taki gildi. Ég sé ekkert slæmt við það. 8)
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby bebecar » Sun 16. May 2004 14:33

Lindemann wrote:mér finnst best þessi ummæli Davíðs um að forsetinn sé vanhæfur til að neita að skrifa undir þessi lög.... en er hann þá hæfur til þess að skrifa undir þau :?: :shock:
ef hann neitar að skrifa undir lögin, þá er það ekkert stórmál.. þá fáum við, þjóðin, bara að ráða hvort þessi lög taki gildi. Ég sé ekkert slæmt við það. 8)


Það er slæmt við það að þá er forsetinn að taka fram fyrir hendurnar á þjóðkjörnum fulltrúum. Þetta á ekki að snúast um hvort þú ert með eða á móti þessum lögum, heldur hvort þau eru lögleg eða ekki. Við höfum dómstóla til að skera úr um það.

Forsetinn á því að samþykkja lögin, ef þau eru ólögleg mun hæstiréttur hnekkja þeim - en ef ekki þá er búið að leysa þennan fjölmiðlahnút... og ríkissútvarpið mun að sjálfsögðu fara í sölu í framhaldi af lögunum því ríkið er með markaðsráðandi stöðu MJÖG VÍÐA! Allt hið besta mál og TRYGGIR sjálfstæða fjölmiðlun með dreifðu eignarhaldi.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby BMW3 » Sun 16. May 2004 15:10

mér fynnst allt í lagi að segja þetta hérna og ég meina það sem ég segji.
Hell was full so i came back!
BMW3
Bannaður
 
Posts: 526
Joined: Mon 15. Sep 2003 16:31
Location: Reykjavík

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 80 guests