e30 hjálp! stýri og wishbone

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e30 hjálp! stýri og wishbone

Postby Bjarki » Fri 14. May 2004 00:00

Jæja nú leita ég á náðir e30 manna!
Er að taka vélina úr 316i bílnum mínum. Ætla að taka hana undan bílnum og það eru 2 flöskuhálsar.
1#
Ég er búinn að losa stýrisvélina frá (langa stykkið sem setur aflið/færslunni út í dekkin) en það eina sem ég næ ekki að losa til að taka hana undan er festingin við stýrið/stýrisstöngina. Það eru ansi margir liðir á þessu og það koma nokkrir til greina. Ég losaði bolta mjög ofarlega og reyndi að spenna þetta laust en án árangurs. Endilega komið með góð ráð. Ég ætla líka að lesa Bentley áður en ég fer að sofa.
2#
Hvernig losar maður "wishbone" stykkið frá bitanum sem vélin situr á? Ég er búinn að losa það á tveimur stöðum af þremur og á þriðja staðnum þar sem það er fest við bitann sem vélin situr á þá er ég búinn að losa boltana sem heldur stykkinu föstu en þetta er alveg pikkfast og ekki hægt að koma "spindilkúluþvingu/losara" að. Öll ráð vel þegin. Ég tékka líka á Bentley fyrir þetta atriði.
Ég er ekki mjög góður í "bíla-íslensku"!
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Fri 14. May 2004 08:33

Þetta er víst allt rétt hjá mér skv. Bentley ég þarf bara að berja fastar á þetta... Ef einhver lumar á tricki þá endilega að koma með það...
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Fri 14. May 2004 09:01

ef þú meinar wishbone sé þá spyrna eða "control arm"

þá eru 3 festi punktar
spindill, subframe og fóðringin fyrir control armanna

Spindil losarru frá strutanum með þar til gerðu BMW tóli eða hvernig sem best er á kosið

Subframe "spindil" er hægt að losa þegar hinir tveir eru lausir þá er bara að snúa þessu fram og tilbaka þangað til að þetta losna og spyrnan dettur úr,

fóðringuna er best að bolta bara úr,, hún er fest með tveim boltum við bílinn

#1

stýris gangurinn (steering rack) er þannig að stýrisstöngin er sett uppá þú sérð að það er bolti sem er skrúfaður fastur til að herða fast samann stöngina og ganginn,, þú þarft að losa boltann og rónna bara alveg frá og sprauta WD-40 eða álíku á þetta,, og að vera búinn að losa hina tvo boltanna og stýrisenda hjálpar líka til

Gangi þér vel
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Bjarki » Sun 16. May 2004 00:01

Takk takk þetta reddaði mér tók ekki nema 20mín að ljúka þessu svo lét ég vélina síga niður. Alltaf gott að fá staðfestingu á því að maður sé að gera rétt því þá gefst maður ekki upp.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests