Jæja nú leita ég á náðir e30 manna!
Er að taka vélina úr 316i bílnum mínum. Ætla að taka hana undan bílnum og það eru 2 flöskuhálsar.
1#
Ég er búinn að losa stýrisvélina frá (langa stykkið sem setur aflið/færslunni út í dekkin) en það eina sem ég næ ekki að losa til að taka hana undan er festingin við stýrið/stýrisstöngina. Það eru ansi margir liðir á þessu og það koma nokkrir til greina. Ég losaði bolta mjög ofarlega og reyndi að spenna þetta laust en án árangurs. Endilega komið með góð ráð. Ég ætla líka að lesa Bentley áður en ég fer að sofa.
2#
Hvernig losar maður "wishbone" stykkið frá bitanum sem vélin situr á? Ég er búinn að losa það á tveimur stöðum af þremur og á þriðja staðnum þar sem það er fest við bitann sem vélin situr á þá er ég búinn að losa boltana sem heldur stykkinu föstu en þetta er alveg pikkfast og ekki hægt að koma "spindilkúluþvingu/losara" að. Öll ráð vel þegin. Ég tékka líka á Bentley fyrir þetta atriði.
Ég er ekki mjög góður í "bíla-íslensku"!

