Þeir sem vilja fá endurgreitt keppnisgjöld sendið línu á driftdeild@gmail.com og við reddum ykkur
Ef ekki, þá eigið þið inni eina keppni
T-bone wrote:verða keppnirnar þa bara 1 færri yfir timqbilið?

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
bimmer wrote:Hvað var málið?
a) Gleymdist að sækja um eitthvað leyfi?
b) LÍA kom allt í einu með nýjar kröfur um leyfi?
c) E-ð annað og þá hvað?

Allar almennar bílaviðgerðir 694-3035 Bilavaktin@gmail.com bv.is

Gunnar H wrote:Góðann daginn félagar,
Það er kannski tímabært að setja niður nokkur orð til að skýra út það sem gerðist þennan dag svo að hlutirnir komist á hreint.
Fyrir það fyrsta þá gerði Ólafur Guðmundsson ekkert rangt þegar hann var með Þrándi starfsmanni nefndarinnar út á braut og stöðvaði að keppnin gæti hafist, þeir eingöngu gerðu það sem þeir voru skyldugir til að gera samkvæmt lögum og hafa þeir fullt vald til þess að stöðva keppnina þar sem ekki voru öll leyfi til staðar fyrir henni.
Það varð misskilningur sem varð til þess að ekki var rétt sótt um leyfi til sýslumanns eins og reglur kveða á um en þetta kennir okkur kannski að vanda betur til verka í framtíðinni og temja okkur vandaðri vinnubrögð því eflaust viljum við öll að mótorsport verði að alvöru á Íslandi.
Keppendur og áhugamenn um Íslenskt mótorsport ættu frekar að fagna slíku inngripi af hálfu nefndar því með þessu er verið að fylgja því eftir að rétt vinnubrögð séu viðhöfð af keppnisstjórnum í undirbúningi keppna og framkvæmd. Þetta sumar er í raun það fyrsta síðan að nefndin var stofnuð að hún er farinn að sinna eftirliti, athugið að það er eingöngu til að gæta öryggis keppenda, starfsmanna og áhorfenda.
Kv Gunni

Lindemann wrote:Eftirlitið er gott og gilt, en það á ekki að þurfa að "stöðva" keppni útaf svona!
Þegar er búið að auglýsa keppni sem er ekki leyfi fyrir, þá ætti að grípa inní.
Ég stend nú enn í þeirri meiningu að þeir hafi ekki leyfi til að stöðva keppni þar sem þeir hafa ekki leyfi til að gefa út keppnisleyfi.


Users browsing this forum: No registered users and 0 guests