Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Jón Ragnar » Sat 12. May 2012 22:23

En hvað sem því líður, þá er næsta keppni 2 júní

Þeir sem vilja fá endurgreitt keppnisgjöld sendið línu á driftdeild@gmail.com og við reddum ykkur :thup:

Ef ekki, þá eigið þið inni eina keppni

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby T-bone » Sun 13. May 2012 00:33

verða keppnirnar þa bara 1 færri yfir timqbilið?
E30 '86 325 M50 Powered
Image
User avatar
T-bone
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1023
Joined: Sun 23. Sep 2007 12:30
Location: Hafnarfjörður

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby eiddz » Sun 13. May 2012 01:36

T-bone wrote:verða keppnirnar þa bara 1 færri yfir timqbilið?

Nei, þeir töluðu um einhverja kvöldkeppni eða þá að bæta einni við aftaná
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Einarsss » Sun 13. May 2012 12:09

við lengjum bara keppnistímabilið og bætum einni keppni við. Það á eftir að ákveða dagsetningu.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Maggi B » Sun 13. May 2012 13:31

Mikið er það frábært hvað menn hafa gaman af því að skemma fyrir
User avatar
Maggi B
Getawaybílstjóri
 
Posts: 952
Joined: Tue 03. Feb 2004 05:08
Location: í hjólförum

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby bimmer » Sun 13. May 2012 16:03

Hvað var málið?

a) Gleymdist að sækja um eitthvað leyfi?

b) LÍA kom allt í einu með nýjar kröfur um leyfi?

c) E-ð annað og þá hvað?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Aron Andrew » Sun 13. May 2012 16:39

bimmer wrote:Hvað var málið?

a) Gleymdist að sækja um eitthvað leyfi?

b) LÍA kom allt í einu með nýjar kröfur um leyfi?

c) E-ð annað og þá hvað?

b)

Og í staðin fyrir að láta vita með fyrirvara þá ákváðu þeir að mæta korter í keppni og loka á hana.

Held að þeir þurfi að ráða sér PR fulltrúa svo þeir auki kannski vinsældir sínar örlítið.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Lindemann » Sun 13. May 2012 16:55

Þið verðið að athuga það að ÍSÍ gefa ekki út keppnisleyfi og hafa þar af leiðandi ekki neina heimild til að stoppa keppni á þeim grundvelli að leyfið sé ekki í lagi.
Þegar svona kemur uppá og menn telja sig hafa allt í lagi, þá verður að standa á sínu. Til að stöðva keppni á þessum forsendum þarf lögreglan að sjá um það, enda eiga þeir að gefa út leyfið.

Ef að ísí maðurinn truflar keppnishald að ástæðulausu og vill ekki yfirgefa svæðið, þá þarf að láta lögreglu fjarlægja hann :?:

En Það er vonandi að það komist botn í þetta mál sem fyrst, enda er þetta eitthvað sem hefur áhrif á allar mótorsport greinar.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby -Siggi- » Mon 14. May 2012 15:36

Maður skilur ekki fyrir hverja LÍA menn eru að vinna.

Ég hefði haldið að þeir ættu að vera hjálpa akstursíþróttamönnum að sinna sínu áhugamáli.

Afhverju gátu þeir ekki látið vita með smá fyrirvara að leyfismál væru ekki lagi svo hægt væri að bjarga því ?

Það virðist vera að menn þurfi að vera sýna eitthvert vald sem þeir þykjast hafa.

Var þetta Ólafur Guðmundsson sjálfur ?
Image Allar almennar bílaviðgerðir 694-3035 Bilavaktin@gmail.com bv.is
- Cadillac CTS-V - Nissan 300ZX TT - 2004 E46 320d Touring -
-Siggi-
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 288
Joined: Fri 06. Jun 2003 00:14

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby MR.BOOM » Mon 14. May 2012 16:34

Hann var einn þeirra sem gáfu álit sitt á þessu máli......
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image
User avatar
MR.BOOM
Getawaybílstjóri
 
Posts: 980
Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Location: Reykjavík

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Gunnar H » Tue 15. May 2012 22:01

Góðann daginn félagar,

Það er kannski tímabært að setja niður nokkur orð til að skýra út það sem gerðist þennan dag svo að hlutirnir komist á hreint.

Fyrir það fyrsta þá gerði Ólafur Guðmundsson ekkert rangt þegar hann var með Þrándi starfsmanni nefndarinnar út á braut og stöðvaði að keppnin gæti hafist, þeir eingöngu gerðu það sem þeir voru skyldugir til að gera samkvæmt lögum og hafa þeir fullt vald til þess að stöðva keppnina þar sem ekki voru öll leyfi til staðar fyrir henni.

Það varð misskilningur sem varð til þess að ekki var rétt sótt um leyfi til sýslumanns eins og reglur kveða á um en þetta kennir okkur kannski að vanda betur til verka í framtíðinni og temja okkur vandaðri vinnubrögð því eflaust viljum við öll að mótorsport verði að alvöru á Íslandi.

Keppendur og áhugamenn um Íslenskt mótorsport ættu frekar að fagna slíku inngripi af hálfu nefndar því með þessu er verið að fylgja því eftir að rétt vinnubrögð séu viðhöfð af keppnisstjórnum í undirbúningi keppna og framkvæmd. Þetta sumar er í raun það fyrsta síðan að nefndin var stofnuð að hún er farinn að sinna eftirliti, athugið að það er eingöngu til að gæta öryggis keppenda, starfsmanna og áhorfenda.

Kv Gunni
User avatar
Gunnar H
Kassabílstjóri
 
Posts: 200
Joined: Thu 07. Aug 2003 23:38

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Aron Andrew » Tue 15. May 2012 23:12

Gunnar H wrote:Góðann daginn félagar,

Þetta er samt sem áður skítlegt af þessari blessuðu nefnd!

Þrándur starfsmaður hefði alveg getað gefið sér 5 mínútur í það að senda út eitt mail fyrir tímabilið með áminningu um hvaða leyfa er krafist.

Það fagnar þessu enginn...
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Lindemann » Wed 16. May 2012 00:12

Eftirlitið er gott og gilt, en það á ekki að þurfa að "stöðva" keppni útaf svona!

Þegar er búið að auglýsa keppni sem er ekki leyfi fyrir, þá ætti að grípa inní.

Ég stend nú enn í þeirri meiningu að þeir hafi ekki leyfi til að stöðva keppni þar sem þeir hafa ekki leyfi til að gefa út keppnisleyfi.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby Gunnar H » Wed 16. May 2012 00:56

Lindemann wrote:Eftirlitið er gott og gilt, en það á ekki að þurfa að "stöðva" keppni útaf svona!

Þegar er búið að auglýsa keppni sem er ekki leyfi fyrir, þá ætti að grípa inní.

Ég stend nú enn í þeirri meiningu að þeir hafi ekki leyfi til að stöðva keppni þar sem þeir hafa ekki leyfi til að gefa út keppnisleyfi.

Þú mátt standa í þinni meiningu eins og þú villt en hún er bara ekki rétt hjá þér og tek ég nokkra punkta hér fyrir þig.

2. gr.
Gildissvið.
Aksturskeppni er íþróttagrein stunduð á vegum eftirtalinna aðila:

Aðildarfélaga innan Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ) vegna keppni á tveggja og þriggja hjóla ökutækjum og torfæruhjólum.
Aðildarfélaga innan Landsambands íslenskra akstursíþrótta (LÍA) vegna keppni á ökutækjum með fjórum hjólum eða fleiri.
Annarra félaga sem eiga aðild að akstursíþróttanefnd ÍSÍ, Íþróttasambands Íslands.

4. gr.
Verklagsreglur.
Ríkislögreglustjóri setur verklagsreglur, byggðar á alþjóðlegum reglum um aksturs íþróttir, sem hafðar skulu til hliðsjónar við veitingu leyfa skv. 3. gr.

http://logregla.is/upload/files/20080407155251413.pdf

5. gr.
Umsögn.
Með umsókn um leyfi til lögreglustjóra til að halda aksturskeppni skal fylgja umsögn LÍA, akstursíþróttanefndar eða sérsambands á vegum ÍSÍ eða LÍA í samræmi við tegund keppni.

Í umsögninni komi fram faglegt mat á öryggisþáttum og tillögur um framkvæmd og eftirlit á keppnisstað í samræmi við verklagsreglur, sbr. 4. gr.

Ef ekki lægu þessar reglur fyrir fengjum við ekki að aka á brautinni hjá okkur og til að benda á það eftirlit sem er með okkur þá ók próflaus maður á æfingu hjá Driftdeildinni og þá fékk formaður AÍH símtal frá lögreglu varðandi það mál sem einfaldlega sýnir að full þörf er á eftirliti.

Kv Gunnar
User avatar
Gunnar H
Kassabílstjóri
 
Posts: 200
Joined: Thu 07. Aug 2003 23:38

Re: Skráning í fyrstu driftkeppni sumarsins, 12. maí

Postby MR.BOOM » Wed 16. May 2012 01:04

Á hvern skrifast þessi mistök ?
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image
User avatar
MR.BOOM
Getawaybílstjóri
 
Posts: 980
Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 2 guests