bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 22. May 2025 13:23

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 23 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Mon 10. May 2004 23:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Frétt á mbl.is

mbl.is wrote:
Lögregla á Spáni gómaði um helgina fimm milljarðamæringa þegar þeir óku sportbílum sínum á yfir 200 km hraða á þjóðvegum Katalóníu. Mennirnir voru að taka þátt í svonefndum Gum Ball 3000, árlegum ólöglegum kappakstri ríkra bílaáhugamanna.
Meðal þátttakenda í ár eru bandaríski leikarinn Adrien Brody, breska fyrirsætan Jodie Kidd, söngvarinn Jamiroquai og frændi kóngsins í Sádi-Arabíu.

Ökumennirnir fimm, sem voru handteknir vegna ofsaakstursins eru sagðir vera frá Bretlandi, Kanada og Belgíu og á aldrinum 30 til 50 ára. Lögregla segir að einn þeirra hafi ekið á milli bæjanna Sagunto og Cambrils, 210 km leið, á 50 mínútum, sem þýðir að meðalhraðinn hefur verið 252 km á klukkustund.

Lögregla í Frakklandi hafði varað kollega sína á Spáni við því að yfir 160 aflmiklir sportbílar væru á leiðinni til landsins en keppnin hófst 5. maí í París. Lögregla í Bordeaux héraði í Frakklandi sektaði nokkra ökumenn fyrir ofsaakstur á laugardag.

Algengustu bílategundirnar í keppninni eru Lamborghini, Ferrari, Bentley, Mercedes, Ford Mustang, Porsche, Chevrolet Camaro, Maserati og BMW.

Að sögn spænska blaðsins La Vanguardia fóru ökumennirnir frá París til Madrídar til að heilsa upp á knattspyrnumanninn David Beckham, brenndu síðan til Costa del Sol og skruppu þaðan yfir til Casablanca og Marrakech þar sem þeir nutu gestrisni Mohammeds VI Marokkókonungs. Í bakaleiðinni ætla þeir að koma við í Cannes þar sem kvikmyndahátíðin er að hefjast en keppninni lýkur á föstudag.

Á síðasta ári fór Gum Ball 3000 fram í Bandaríkjunum. Þá var áætlað að samanlagðar sektir sem þátttakendur þurftu að greiða, hafi numið jafnvirði tæpra tveggja milljóna króna.


_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 00:11 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Posts: 252
Location: Hafnarfjörður
Hehe... afhverju er ég ekki milli... 8)
Snilldarkeppni... vona bara að enginn slasist :roll:

_________________
BMW 320 e36 "93 -í notkun-


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 00:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Myndi nú ekki kalla þetta snilldar keppni, þeir væru í feiiiiitum vandræðum ef þeir myndi tjóna eitthvað líð :oops:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 00:24 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Posts: 252
Location: Hafnarfjörður
Reyndar... en ef að ekkert kemur fyrir þá er þetta eflaust mjög gaman. En eins og ég sagði vona bara að enginn slasist eða skemmi flotta bílinn sinn...

_________________
BMW 320 e36 "93 -í notkun-


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 00:55 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Posts: 425
Location: Kópavogur
það er bara töff að geta leyft sér þetta

_________________
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 02:47 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Sjiiii......... Jay kay, söngvari Jamiroquai var einmitt að fá sér svartann Enzo. Hann á geðveika bíla 8)

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 08:17 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mér hefur alltaf litist vel á þessa keppni - "stóri bróðir" fær koss beint á "linsuna" og það er bara svalt.

Sá einmitt þessa Jodie Kidd í gær í Top Gear videó, ansi töff gella og hún kann að keyra 8) Jay Kay er líka mega töffari.

Þetta lið er að vinna mikið verk fyrir okkur bílaáhugamenn þar sem allstaðar er þjarmað að akstursáhugamönnum, í öllum löndun með lækkandi hraða, fleiri hraðamyndavélum, hraðahindrunum.

Munið, við erum vakandi ökumennirnir :wink: hinir eru sofandi :shock:

Fyrir 50 árum var kappakstur haldin á lokuðum götum og hver sem gat borgað innritunargjaldið gat tekið þátt á eigin ábyrgð, í dag eru allir svo hræddir.

NO guts NO glory!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 08:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Hvað haldiði að við séum að fara gera á bílunum okkar á næsta ári,,

Allir að skipta um drif til að geta cruisað á 200kmh í 4000rpm ;)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 10:08 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 03. May 2003 18:27
Posts: 834
gstuning wrote:
Hvað haldiði að við séum að fara gera á bílunum okkar á næsta ári,,

Allir að skipta um drif til að geta cruisað á 200kmh í 4000rpm ;)


Hva geturðu það ekki núna :wink:

_________________
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 12:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
benzboy wrote:
gstuning wrote:
Hvað haldiði að við séum að fara gera á bílunum okkar á næsta ári,,

Allir að skipta um drif til að geta cruisað á 200kmh í 4000rpm ;)


Hva geturðu það ekki núna :wink:


Hmm, slær út í 7200 á 210kmh eftir um 22sek
getur einhvern hér sagt það :)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 13:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
bebecar wrote:
Mér hefur alltaf litist vel á þessa keppni - "stóri bróðir" fær koss beint á "linsuna" og það er bara svalt.

Sá einmitt þessa Jodie Kidd í gær í Top Gear videó, ansi töff gella og hún kann að keyra 8) Jay Kay er líka mega töffari.

Þetta lið er að vinna mikið verk fyrir okkur bílaáhugamenn þar sem allstaðar er þjarmað að akstursáhugamönnum, í öllum löndun með lækkandi hraða, fleiri hraðamyndavélum, hraðahindrunum.

Munið, við erum vakandi ökumennirnir :wink: hinir eru sofandi :shock:

Fyrir 50 árum var kappakstur haldin á lokuðum götum og hver sem gat borgað innritunargjaldið gat tekið þátt á eigin ábyrgð, í dag eru allir svo hræddir.

NO guts NO glory!


bebecar: ég tek svo sannarlega undir þetta með þér. Hér á Íslandi er lítið rúm fyrir hraðakstur nema ömurlegar aðstæður. Ég er ennþá bíðandi eftir að tryggingafélögin taki sig til og láti byggja keppnisbraut sem verður nýtileg fyrir ökunema.

Gumball 3000: The Movie verður sýnd á bíladögum 2004 í nýjabíó. Þeir í bmwkrafti sem fara norður eru kvattir til að mæta. Frítt inn.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 14:04 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það hlýtur að vera hægt að fá þessa mynd sýnda hér í bænum líka - yrði örugglega vel mætt.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 14:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
bebecar wrote:
Það hlýtur að vera hægt að fá þessa mynd sýnda hér í bænum líka - yrði örugglega vel mætt.


Ég var einmitt að horfa á hana í gærkveldi, mjöög gaman. :D

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 16:48 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Posts: 989
Location: Seoul, South-Korea
..Enn fleiri myndir af Gumball bílunum í ár
------} http://membres.lycos.fr/kleescbastia/gumball3000/


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. May 2004 17:26 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 27. Jul 2003 20:34
Posts: 297
Location: 101
Einn þeirra sem var tekinn þarna á Spáni keyrir m.a. breyttan 996 GT2, var handtekinn 12 sinnum í fyrra fyrir hraðakstur og er að fara að fá í hendurnar nýjan Carrera GT :o
Og menn segja að þótt þeir hafi verið teknir á 250km/h, þá hafi sú tala bara verið það hæsta sem radarinn komst í. Ég á video frá gaurnum á GT2inum frá því í fyrra, og þar fer hann oftar en einusinni í 330km/h+ á mæli.

Keppnin í ár fór samt í algeran skít - Enzo klesstur, 360 Spyder klesstur, 650hp Escort Cosworth í hakki, Viper klesstur, Murcielago keyrði aftan á traktor, o.fl.
Og mörg af þessum slysum má víst rekja til þess að lögreglan í Marokkó fékk fyrirmæli um að skipta sér ekkert af mönnum vegna hraðaksturs = fullt af fólki sem á meira af peningum en viti að keyra eins og fávitar á 200-300km/h innan um venjulega umferð..

Og hér er 75mb vídjó - ekki mikið aksjon, en fullt af bílum samt: http://www.passion-gt.com/video/GumBall ... sionGT.mpg

Óbeislaður hedónismi af bestu gerð :)


Hér er svo smá before&after síðan um helgina:

Image
Image

Ljótt að sjá þetta.

_________________
Helgi Páll Einarsson


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 23 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 66 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group