Til sölu er BMW 535i (E34) ´88
Svona að velta því fyrir mér að láta þennann frá mér eftir nærri 6 ára samveru.
Bíll sem ég hef lagt blóð svita og tár í og óhemju vinnu og aur. Átt í Love/Hate relationship við og hvaðeina við kvikindið.
Bíllinn rennur útúr verksmiðju í DE í septemberlok 1988. Hann ól fyrstu 16 ár ævi sinnar þeysandi um hraðbrautirnar í Evrópu. Þar mun hann hafa átt tvo eigendur, annar krimmi sem sat inni, hinn gamall og lúinn. Það er svo 2004 þegar Sæmi okkar fluggarpur hérna á kraftinum flytur hann inn (þá ekinn 117þkm). Fyrsti sölulinkur hér á landi frá Sæma ->
viewtopic.php?f=10&t=7365&hilit=535i+bmwAf honum kaupir Einar Ingi Þorsteinsson bíllinn í september sama ár, dekrar við hann eins og honum er lagið og selur síðan aftur í ágúst 2005 þá ekinn rétt rúm 130þ km. Sölulinkur frá Einari ->
viewtopic.php?f=10&t=8793&hilit=535i+bmwAf Einari kaupir að mig minnir maður að nafni Jón Emil Árnason, fæddur rétt fyrir 1950. Hann átti bílinn þangað til ég kaupi hann í oktober 2006, þá ekinn 162þ km. Gaman að því að þegar ég hringdi í hann fyrst þá spurði hann mig hvað ég væri gamall, því hann ætlaði ekki að selja neinum ungum vitleysingi bílinn. Ég greinilega stóðst prófið og upp hófust miklar samningaumleitanir.
Síðasti söluþráður sem var gerður ->
viewtopic.php?f=10&t=17745&hilit=535i+bmw+1988Síðan þá hefur þessi bíll tekið stökkbreytingum og bætingum í minni eigu og lítið verð til sparað þegar gengið hefur verið til verks. Gaman að því að eftir áramótin næstu verður þessi bíll 25 ára fornbíll

Upplýsingar um bílinn.Árgerð - 9/1988
Gerð – BMW 535i E34
Vél – M30B35 – 211hp/305nm
Skipting – 5 gíra beinskiptur
Drif – 3.91LSD (úr M5, upphaflega 3.45LSD í bílnum)
Akstur – 199.9xx km
Litur – Royalblau Metallic
Búnaður - Upphaflegur.Grá leður innrétting með sportsætum.
Rafmagn í sætum og minni í bílstjórasæti.
Hiti og rafmagn í speglum.
Rafmagn í rúðum.
Samlæsingar.
Stóra aksturstölvan.
Bilanatölva.
ABS Bremsur.
ASC Spólvörn.
Skriðstillir (Cruise Control)
Læst drif.
Þvottabúnaður fyrir aðalljós og kastara (óvirkt fyrir kastara en ekkert mál að virkja ef menn vilja)
Þokuljós í stuðara.
Leður Sportstýri.
Manual gardína í afturrúðu.
Upphitaðir rúðupissstútar.
Afþýðing á lásum.
ég á fæðingarvottorðið einhverstaðar í tölvutæku, en þarf bara að finna það.
Breytingar og viðhald.Alveg rauð afturljós – 2007
8000k Xenon í framljós - 2007
Shadowline grill (Svart ABS plast, ekki sprautað króm) – 2007
Clear stefnuljós að framan(ekki lengur á) - 2007
Setti nýja afturáhillu með gardínu þar sem trekkibúnaður á þeirri gömlu var bilaður – 2007
Nýr viftuspaði - 2007
Lækkaður 45/35 – GT Cupline(DE brand) gormar – 2008
Demparar – Koni yellow adj(stillanlegir F/R) – 2008
Kmac Stage 1 Cambe/caster stillanlegar plötur - 2008
M5 upper spring pads (3mm þykkt í stað 9mm) - 2008
Skipt var um allt í hjólabúnaði 2008
- Control arma (M5 alu upgrade)
- Thrust arma
- Millibilsstöng
- Stýrisenda og stangir
- Idler arm
- Ballancestangar enda A/F
- Pitman arma(dog bones)
Settar voru polyfóðringar í eftirfarandi 2008
- Control arma
- Thrust arma
- Ballancestangar festingar
- Subframefóðringar
Nýjir diskar og klossar – 2008
Hjólastilling – 2008
Ný framrúða með dökkri rönd efst – 2009
Heilsprautun – 2009
Authentic complete AC Schnitzer kit (A/F svuntur + sílsar) – 2009
Hella Dark Framljós – 2009
Nýjir kastarar – 2009
8000k Xenon í kastara – 2009
Reyklituð stefnuljós að framan – 2009
M-Tech II stýri – 2009
Lower Wide grille (hlífar hjá kösturum eru með ristum) – 2009
AC Schnitzer skottspoiler (Gerður úr kevlar) – 2009
Shadowline-aði alla lista – 2009
8000k Xenon í kastara – 2009
OEM Trailing arm fóðringar að aftan – 2009
Ný merki á húdd og skott – 2009
M-Tech listar neðan á hurðir – 2009
Skipti aftur um control arma að framan (M5 ALU again) – 2010
Custom 3“ púst með dual 3“ kút – 2010
Skipti um heddpakkningu, ventlaþéttingar og pakkdósir og ýmsar pakkningar – 2010
Setti 292/292 Ireland Engineering reground heitann ás í heddið í leiðini ásamt fylgihlutum – 2010
Ný viftukúppling – 2010
AC Schnitzer Type I - 17x8.5 et13 – Pólerað lip/miðja sprautuð í Brilliant Silver(Harley litur) - 2011
M3 Evo 3way adj Gurney Flap sett á ACS Spoilerinn – 2011
3.91LSD sett í með öllum nýjum pakkdósum og pakkningum og o-hringjum – 2011
Með bílnum fylgir svo eitthvað af dóti- Einhver hrúga af reikningum og þesslags dóti
- Nýtt JB Racing 8.5lbs swinghjól(M5/s38)
- Nýjar vírofnar bremsuslöngur í allt.
- Nýsprautað skottlok með álímdu E39 M5 style lippi
- 4x15“ álfelgur
- 4x15“ stálfelgur
- Gamla leðraða sportstýrið
- ofl ofl af e34 gramsi, subframe, trailing arma ofl ofl ofl ofl
Það er ekki ósennilegt að ég sé að gleyma einhverju, en ég hafði ekki hugsað mér að selja þennann bíl nokkurtíman, en ég fékk þá flugu í höfuðið að athuga hvort að einhver áhugi reyndist fyrir honum. Verði þessi bíll seldur, þá selst hann ekki hverjum sem er….
Verðmiðinn er í hærri kanntinum vitanlega.
1.700þ íslenskar krónur stgr. Þarf ekki að heyra væl um það.
Skoða skipti á einhverju ódýrara, helst rwd og bmw. Engar örlagadruslur þó. E32,E34,E36,E38 og E39 koma vel til greina + milligjöf. Eitthvað auðseljanlegt af öðrum tegundum kemur þó vel til greina.
Menn mega hafa samband í PM eða síma bara.
Vinsamlegast hafa kjaftæði í lágmarki, þó að góðar umræður séu alltaf af hinu góða.
Þráður um bílinn frá því ég eignast hann og til dagsins í dag, haugur af myndum - >
viewtopic.php?f=5&t=18823Læt hér eina mynd fylgja, Sæmi Boom tók þessa mynd á bíladögum 2011(hann á hana og ég tek hana út ef hann óskar þess)
