bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 03. May 2025 13:51

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 56 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4  Next
Author Message
PostPosted: Thu 08. Mar 2012 23:24 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Til sölu er BMW 535i (E34) ´88

Svona að velta því fyrir mér að láta þennann frá mér eftir nærri 6 ára samveru.
Bíll sem ég hef lagt blóð svita og tár í og óhemju vinnu og aur. Átt í Love/Hate relationship við og hvaðeina við kvikindið.
Bíllinn rennur útúr verksmiðju í DE í septemberlok 1988. Hann ól fyrstu 16 ár ævi sinnar þeysandi um hraðbrautirnar í Evrópu. Þar mun hann hafa átt tvo eigendur, annar krimmi sem sat inni, hinn gamall og lúinn. Það er svo 2004 þegar Sæmi okkar fluggarpur hérna á kraftinum flytur hann inn (þá ekinn 117þkm). Fyrsti sölulinkur hér á landi frá Sæma -> viewtopic.php?f=10&t=7365&hilit=535i+bmw

Af honum kaupir Einar Ingi Þorsteinsson bíllinn í september sama ár, dekrar við hann eins og honum er lagið og selur síðan aftur í ágúst 2005 þá ekinn rétt rúm 130þ km. Sölulinkur frá Einari -> viewtopic.php?f=10&t=8793&hilit=535i+bmw

Af Einari kaupir að mig minnir maður að nafni Jón Emil Árnason, fæddur rétt fyrir 1950. Hann átti bílinn þangað til ég kaupi hann í oktober 2006, þá ekinn 162þ km. Gaman að því að þegar ég hringdi í hann fyrst þá spurði hann mig hvað ég væri gamall, því hann ætlaði ekki að selja neinum ungum vitleysingi bílinn. Ég greinilega stóðst prófið og upp hófust miklar samningaumleitanir.

Síðasti söluþráður sem var gerður -> viewtopic.php?f=10&t=17745&hilit=535i+bmw+1988

Síðan þá hefur þessi bíll tekið stökkbreytingum og bætingum í minni eigu og lítið verð til sparað þegar gengið hefur verið til verks. Gaman að því að eftir áramótin næstu verður þessi bíll 25 ára fornbíll :D

Upplýsingar um bílinn.

Árgerð - 9/1988
Gerð – BMW 535i E34
Vél – M30B35 – 211hp/305nm
Skipting – 5 gíra beinskiptur
Drif – 3.91LSD (úr M5, upphaflega 3.45LSD í bílnum)
Akstur – 199.9xx km
Litur – Royalblau Metallic


Búnaður - Upphaflegur.
Grá leður innrétting með sportsætum.
Rafmagn í sætum og minni í bílstjórasæti.
Hiti og rafmagn í speglum.
Rafmagn í rúðum.
Samlæsingar.
Stóra aksturstölvan.
Bilanatölva.
ABS Bremsur.
ASC Spólvörn.
Skriðstillir (Cruise Control)
Læst drif.
Þvottabúnaður fyrir aðalljós og kastara (óvirkt fyrir kastara en ekkert mál að virkja ef menn vilja)
Þokuljós í stuðara.
Leður Sportstýri.
Manual gardína í afturrúðu.
Upphitaðir rúðupissstútar.
Afþýðing á lásum.

ég á fæðingarvottorðið einhverstaðar í tölvutæku, en þarf bara að finna það.

Breytingar og viðhald.

Alveg rauð afturljós – 2007
8000k Xenon í framljós - 2007
Shadowline grill (Svart ABS plast, ekki sprautað króm) – 2007
Clear stefnuljós að framan(ekki lengur á) - 2007
Setti nýja afturáhillu með gardínu þar sem trekkibúnaður á þeirri gömlu var bilaður – 2007
Nýr viftuspaði - 2007
Lækkaður 45/35 – GT Cupline(DE brand) gormar – 2008
Demparar – Koni yellow adj(stillanlegir F/R) – 2008
Kmac Stage 1 Cambe/caster stillanlegar plötur - 2008
M5 upper spring pads (3mm þykkt í stað 9mm) - 2008
Skipt var um allt í hjólabúnaði 2008
- Control arma (M5 alu upgrade)
- Thrust arma
- Millibilsstöng
- Stýrisenda og stangir
- Idler arm
- Ballancestangar enda A/F
- Pitman arma(dog bones)
Settar voru polyfóðringar í eftirfarandi 2008
- Control arma
- Thrust arma
- Ballancestangar festingar
- Subframefóðringar
Nýjir diskar og klossar – 2008
Hjólastilling – 2008
Ný framrúða með dökkri rönd efst – 2009
Heilsprautun – 2009
Authentic complete AC Schnitzer kit (A/F svuntur + sílsar) – 2009
Hella Dark Framljós – 2009
Nýjir kastarar – 2009
8000k Xenon í kastara – 2009
Reyklituð stefnuljós að framan – 2009
M-Tech II stýri – 2009
Lower Wide grille (hlífar hjá kösturum eru með ristum) – 2009
AC Schnitzer skottspoiler (Gerður úr kevlar) – 2009
Shadowline-aði alla lista – 2009
8000k Xenon í kastara – 2009
OEM Trailing arm fóðringar að aftan – 2009
Ný merki á húdd og skott – 2009
M-Tech listar neðan á hurðir – 2009
Skipti aftur um control arma að framan (M5 ALU again) – 2010
Custom 3“ púst með dual 3“ kút – 2010
Skipti um heddpakkningu, ventlaþéttingar og pakkdósir og ýmsar pakkningar – 2010
Setti 292/292 Ireland Engineering reground heitann ás í heddið í leiðini ásamt fylgihlutum – 2010
Ný viftukúppling – 2010
AC Schnitzer Type I - 17x8.5 et13 – Pólerað lip/miðja sprautuð í Brilliant Silver(Harley litur) - 2011
M3 Evo 3way adj Gurney Flap sett á ACS Spoilerinn – 2011
3.91LSD sett í með öllum nýjum pakkdósum og pakkningum og o-hringjum – 2011


Með bílnum fylgir svo eitthvað af dóti
- Einhver hrúga af reikningum og þesslags dóti
- Nýtt JB Racing 8.5lbs swinghjól(M5/s38)
- Nýjar vírofnar bremsuslöngur í allt.
- Nýsprautað skottlok með álímdu E39 M5 style lippi
- 4x15“ álfelgur
- 4x15“ stálfelgur
- Gamla leðraða sportstýrið
- ofl ofl af e34 gramsi, subframe, trailing arma ofl ofl ofl ofl

Það er ekki ósennilegt að ég sé að gleyma einhverju, en ég hafði ekki hugsað mér að selja þennann bíl nokkurtíman, en ég fékk þá flugu í höfuðið að athuga hvort að einhver áhugi reyndist fyrir honum. Verði þessi bíll seldur, þá selst hann ekki hverjum sem er….

Verðmiðinn er í hærri kanntinum vitanlega. 1.700þ íslenskar krónur stgr. Þarf ekki að heyra væl um það.
Skoða skipti á einhverju ódýrara, helst rwd og bmw. Engar örlagadruslur þó. E32,E34,E36,E38 og E39 koma vel til greina + milligjöf. Eitthvað auðseljanlegt af öðrum tegundum kemur þó vel til greina.
Menn mega hafa samband í PM eða síma bara.

Vinsamlegast hafa kjaftæði í lágmarki, þó að góðar umræður séu alltaf af hinu góða.

Þráður um bílinn frá því ég eignast hann og til dagsins í dag, haugur af myndum - > viewtopic.php?f=5&t=18823

Læt hér eina mynd fylgja, Sæmi Boom tók þessa mynd á bíladögum 2011(hann á hana og ég tek hana út ef hann óskar þess)
Image

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Last edited by jon mar on Mon 15. Oct 2012 14:15, edited 5 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 08. Mar 2012 23:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Fyrir þetta eintak af E34 finnst mér verðmiðinn alveg réttlætanlegur! Enda heldur það vonandi frá fólki sem kaupir bara bílinn því hann er flottur og fer illa með hann og síðan endar hann eins og drusla eins og nokkur ár. Aðeins áhugamenn eiga að eignast þetta eintak!

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 09. Mar 2012 11:41 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 04. Feb 2010 09:21
Posts: 651
shit hvað þetta er geggjað mundi aldrei tíma að selja svona bíl ef ég ætti hann en vonandi fer hann í mjög góðar hendur þessi bíl :D

_________________
Bmw 520IA 91"partaður
Bmw 525I 93" Seldur
Bmw 530I 88" Seldur
Bmw 535I 90" Seldur
Bmw 540IA 93" Í notkun
Bmw M5 91" Seldur
Bmw 740ia 96" Seldur




kristján S.7733711


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 07:36 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 13. Jun 2010 20:28
Posts: 84
bara flottasti E34 á landinu finnst mér


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 08:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Það vantar ekki TLC í þennan.

Glæsileg auglýsing.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 11:52 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Mönnum er alveg frjálst að athuga hvort þeir geti freystað mín á einhvern hátt :wink:


Náttúrlega gamall bíll og ekki fullkominn, en hann er góður og ég hef hugsað vel um hann. Æðislegt að keyra hann, liggur eins og skata. Hljóðið í honum er guðdómlegt, pústnótan er í það minnsta alveg við mitt hæfi.

Ef hann fer ekki, þá verður bara svo að vera og ég held bara áfram að dunda mér í honum 8)

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 17:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Feb 2004 16:29
Posts: 2466
Location: Playboy Mansion, Hafnarfjörður
Heyrðu vinurinn, þarf ég að koma sérstaka ferð norður til að neyða ofan í þig lyfin þín??
Því þú virðist sannarlega ekki vera að muna eftir að taka þau.... :thdown:

_________________
Rúnar P
662 5272

Druslusafnið núna:
BMW e46
Suzuki Baleno
Honda CRF250R
Pocket Bike og fleira misgáfulegt dót...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 17:56 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Twincam wrote:
Heyrðu vinurinn, þarf ég að koma sérstaka ferð norður til að neyða ofan í þig lyfin þín??
Því þú virðist sannarlega ekki vera að muna eftir að taka þau.... :thdown:


:lol:
Kannski er ákveðinn M5 að freista hans. :idea:

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 13. Mar 2012 19:06 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 13. Jun 2010 20:28
Posts: 84
hættu við söluna , allaveganna er ég svo sannarlega að spá í því


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 16. Mar 2012 13:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Image

Image

Image

Image

Image

Image

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Mar 2012 20:51 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Þetta er formlega orðinn óáhugaverðasti bíll kraftsins :lol:

Ekki einu sinni dónatilboð :o :shock: :lol:

Ætli ég eigi þetta þá ekki eitthvað lengur 8) :mrgreen: :santa:

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Mar 2012 20:55 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 22. Aug 2003 22:27
Posts: 663
Slétt skipti á 2004 Skoda Fabia :lol:

_________________
Geir Harrysson
F11 535d x-drive
Seldir BMW
E39 525D
E38 740i
E39 540i
E34 M5
E34 540i
E34 530i
E36 320i coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Mar 2012 20:55 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Geir-H wrote:
Slétt skipti á 2004 Skoda Fabia :lol:


hahahahahaha, nei takk :p

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Mar 2012 23:44 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 22. Aug 2003 22:27
Posts: 663
Vertu ekki að kvarta yfir dónatilboðum haha

_________________
Geir Harrysson
F11 535d x-drive
Seldir BMW
E39 525D
E38 740i
E39 540i
E34 M5
E34 540i
E34 530i
E36 320i coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 18. Mar 2012 00:09 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Þetta er alveg hættulega fallegur E34 8)

Image


Ég væri til í að sjá önnur afturljós á bílnum og S38 í stað M30 hamstursins :angel:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 56 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 77 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group