bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 01. May 2025 12:32

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Sun 13. Nov 2011 21:57 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Posts: 222
Location: Reykjavík
Fyrst það eru nokkrir Mini þræðir hér í bílar meðlima þá ætla ég gefa mér það bersaleyfi að pósta þessu.
Eftir að hafa eytt tveimur mánuðum af lífi mínu í að skoða bílaauglýsingar þá kom að því að ég fékk nóg, fór út og keypti bíl.

Það sem ég keypti...
Mini Cooper árgerð 2002, ekinn 101.000 km.

Þessi bíll var innfluttur notaður frá Þýskalandi árið 2005 og var í eigu Waage fjölskyldunnar þangað til í febrúar á þessu ári.
Bíllinn var svo seldur til Vopnafjarðar og var 19 ára gömul stúlka skráð fyrir honum.
Hún átti hann samt bara í rétt rúmar þrjár vikur, tjónaði hann og VÍS borgaði hann út.
Fyrri eigandi keypti svo bílinn tjónaðann af VÍS og tjaslaði honum eitthvað saman til bráðabirgðar.
Dóttir hans notaði svo bílinn þangað til hún stakk af í nám erlendis.
Því fór sem fór og bíllinn hefur nú endað í mínum höndum. 8)

Það er mikill fílingur að keyra þetta og ég er einstaklega sáttur við að hafa fundið bíl sem sameinar kosti smábíls og sportbíls.
Magnað hvað þessir bílar vekja mikla athygli og ég er strax farinn að heyra "flottur bíll" frá ókunnugum fólki.

Bíllinn er þokkalega útbúinn frá verksmiðjunni.
Innréttingin kallast Chili sem á að vera það flottasta af þremur pökkum sem í boði voru (Salt, Pepper, Chili)
Það helsta í aukabúnaði er ASC-T stöðugleikakerfi, Sport fjöðrun, Spoiler, leðurstýri, krómpakki að utan, hálfleðruð sport sæti, þokuljós, loftkæling, ljósapakki (ljós sem lýsir á fæturnar) í innréttingu og Cooper S felgur.

Fyrri eigendur gerðu ýmislegt fyrir bílinn og ber þar hæst að nefna smá klessu á framendann.
Þessi klessa var samt nóg til að þess að VÍS borgaði bílinn út á sínum tíma.
Við þessa klessu sprungu loftpúðarnir, húdd, ljós, plastlistar og stuðari skemmdust einnig.
Það er þó búið að skítmixa megnið af þessu en það er samt nóg eftir á "to do" listanum.

To do listinn:
-Laga Air Condition:
Kerfið er lekalaust og stútfullt af freon en dælan fer ekki í gang.
-Skipta út húddlömum en þær skekktust í klessunni (á lamirnar en líklega óþarfi að græja þetta).
-Innréttingin er rispuð svo ég er að hugsa um að mála hana aftur. (sé til með þetta)

Búið að gera:
-Laga skránna á hurðinni.
-Ný afturljós (annað nýja ljósið brotið :argh: )
-Skipta um diska og klossa allan hringinn.
-Mála felgurnar hvítar og skipt um felgubolta.
-Skipta út skemmdum plast og krómlistum.
-Húdd rétt og málað.
-Ýmislegt bak við stuðarann lagfært eins og þokuljósabracketið.
-Stuðarinn málaður og settir á krómlistar.
-Cooper rendur á húdd.
-Glær stefnuljós i frambrettum.
-Inspektion II hjá Eðalbílum.
-Laga samlæsingar. Ekki hægt að opna farþegahurðina með fjarstýringunni. - Ónýtur central locking actuator. Pantaði nýja læsingu frá Bretlandi og er hún nú komin í bílinn og virkar eins og hún á að gera.
-Rífa símkerfið úr bílnum enda er það ekki að hannað með iPhone í huga. - Komið úr, pantaði nýjan part í innréttinguna til að fela þetta endanlega.
-Eftir klessuna var skipt um annað framljósið og er það nýja mjög áberandi ferskara.
Skipti um perur og ætla að láta þar við sitja.
-Nýir beltastrekkjarar - báðir voru ónýtir og kom alltaf villuljós í mælaborðið.
-Nýtt innrabretti.
-Nýjar rúðuþurrkur að framan og aftan.
-Nýr rúðupiss stútur fyrir afturrúðu.
-Reyndi að laga framsæti því það er komið ágætis slag í sætisbakið. - Reif sætið í sundur og fékk fróða menn með í verkið. Niðurstaðan var sú að það þarf að skipta slitna hlutanum út. Það er hægara sagt en gert enda þyrfti að finna nýja sætisgrind. Líklega er sniðugast að lifa bara með þessu.

Grunar að sjálfvirkar þvottastöðvar hafi séð um þrifinn á þessum bíl undanfarin misseri svo ekki veitti af smá þrifum.
Tók því seinni partinn í þetta og tók svo nokkrar myndir.

Image
Beyglan hér hægramegin á húddinu.
Image
Image

Vonandi hafi þið haft gaman að þessari lesningu.

EDIT: Uppfærði "to do" listann.

_________________
E36 BMW 316i M-Tech 1998


Last edited by gjonsson on Tue 21. Aug 2012 18:09, edited 12 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Sun 13. Nov 2011 22:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Til lukku,, hef ekki keyrt svona bíl en langar að prófa einn daginn

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Sun 13. Nov 2011 22:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Flottur bíll

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 08:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Þetta eru fínustu bílar! er búinn að eiga einn í rúmt ár núna.

Það viðkvæma í þessu er gírkassinn, 5 gíra Midland kassinn í Cooper er bara algjört drasl, ég er búinn að swappa í minn 6speed Getrag úr Cooper S.
Annað sem er pínu erfitt eru rúðuupphalararnir, en það þarf að smyrja þá.

Annars er þetta bara fínt, en mjög tricky í akstri, sérstaklega í hálku þar sem að boddýið er stíft og stutt á milli hjóla. Hann yfirstýrir því frekar auðveldlega.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 11:36 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Posts: 222
Location: Reykjavík
fart wrote:
Þetta eru fínustu bílar! er búinn að eiga einn í rúmt ár núna.

Það viðkvæma í þessu er gírkassinn, 5 gíra Midland kassinn í Cooper er bara algjört drasl, ég er búinn að swappa í minn 6speed Getrag úr Cooper S.
Annað sem er pínu erfitt eru rúðuupphalararnir, en það þarf að smyrja þá.

Annars er þetta bara fínt, en mjög tricky í akstri, sérstaklega í hálku þar sem að boddýið er stíft og stutt á milli hjóla. Hann yfirstýrir því frekar auðveldlega.


Það verður fjör á þessum í vetur. 8)
Annars er gírkassinn í þessum nokkuð smooth og fínn. Ætla rétt að vona að hann taki ekki upp á því að klikka.
Rúðurupphalarnir virka fínt en það er nú samt eins og þeir séu aðeins farnir að erfiða. Lagast það eitthvað við smurið?

Getur annars einhver mælt með einhverri netverslun sem sérhæfir sig í Mini?

_________________
E36 BMW 316i M-Tech 1998


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 11:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
gjonsson wrote:
fart wrote:
Þetta eru fínustu bílar! er búinn að eiga einn í rúmt ár núna.

Það viðkvæma í þessu er gírkassinn, 5 gíra Midland kassinn í Cooper er bara algjört drasl, ég er búinn að swappa í minn 6speed Getrag úr Cooper S.
Annað sem er pínu erfitt eru rúðuupphalararnir, en það þarf að smyrja þá.

Annars er þetta bara fínt, en mjög tricky í akstri, sérstaklega í hálku þar sem að boddýið er stíft og stutt á milli hjóla. Hann yfirstýrir því frekar auðveldlega.


Það verður fjör á þessum í vetur. 8)
Annars er gírkassinn í þessum nokkuð smooth og fínn. Ætla rétt að vona að hann taki ekki upp á því að klikka.
Rúðurupphalarnir virka fínt en það er nú samt eins og þeir séu aðeins farnir að erfiða. Lagast það eitthvað við smurið?

Getur annars einhver mælt með einhverri netverslun sem sérhæfir sig í Mini?


Þú munt heyra þegar gírkassinn fer að gefast upp, leguhljóðið var ærandi í mínum.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 12:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Hvernig smyr maður þessa upphalara?

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 13:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Fatandre wrote:
Hvernig smyr maður þessa upphalara?


Ég tók hurðarspjaldið af og setti feiti í sleðana þar. Þetta vandamál er ekkert ósvipað öðrum BMW's með rammalausar hliðarrúður.

Ferlega fyndið trix ef þetta festist, maður heldur takkanum uppi (eins og maður sé að skrúfa upp), og lemur þéttings fast á ákveðin stað á hurðarspjaldið þrisvar sinnum, og tosar svo takkann niður þá opnast rúðan :lol: :thup:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Mini Cooper
PostPosted: Mon 14. Nov 2011 14:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Ætli maður þurfi ekki að gera þetta á bimanum :D

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: R50 Mini Cooper 2002
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 17:44 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Posts: 222
Location: Reykjavík
Kominn tími á update enda búið að laga nánast allt það sem var að plaga bílinn þegar ég keypti hann.
Svona leit bíllinn út fyrir rétt um ári síðan á tjónauppboði hjá Vís.
Frekar sjúskaður og óhuggulegur. Fyrri eigandi gerði bílinn þó örlítið skárri í útliti en það var algjört skítmix og þegar skoðað var bak við stuðarann kom ýmislegt í ljós.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Síðan þessar myndir voru teknar hefur margt gerst til hins betra.
"To do" listinn var frekar langur en núna er allt klappað og klárt eða í vinnslu.

To do listinn:
-Skipta út húddlömum en þær skekktust í klessunni (í pöntun).
-Skipta um diska og klossa allan hringinn (varahlutir komnir, á eftir að setja í).
-Innréttingin er rispuð svo ég er að hugsa um að mála hana aftur. (sé til með þetta)
-Ný afturljós (komin í hús, á bara eftir að setja í)
-Laga skránna á hurðinni - Það þarf að liðka hana til enda er hún nánast föst af notkunarleysi.

Búið að gera:
-Mála felgurnar hvítar og skipt um felgubolta.
-Skipta út skemmdum plast og krómlistum, vantar samt einn plastlista en hann er í pöntun hjá BL.
-Húdd rétt og málað.
-Ýmislegt bak við stuðarann lagfært eins og þokuljósabracketið.
-Stuðarinn málaður og settir á krómlistar.
-Cooper rendur á húdd.
-Glær stefnuljós i frambrettum.
-Inspektion II hjá Eðalbílum.
-Laga samlæsingar. Skipti út læsingunni og það lagaði vandamálið.
-Reif símkerfið úr bílnum enda hannað fyrir síma frá 2002. Þurfti að skipta út hluta af innréttingunni til að fela þetta.
-Nýir beltastrekkjarar - báðir voru ónýtir og kom alltaf villuljós í mælaborðið.
-Nýtt innrabretti.
-Nýjar rúðuþurrkur að framan og aftan.
-Nýr rúðupissstútur fyrir afturrúðu.
-Reyndi að laga framsæti því það er komið ágætis slag í sætisbakið. - Tókst ekki og niðurstaða fróðra manna að finna nýja sætisgrind.

Annars er bíllinn búinn að reynast mjög vel í vetur og alltaf hörkustuð að keyra þetta.
Steinliggur í beygjum enda á boddíið og fjöðrunin stíf og svo eru low profile dekkin ekki til að minnka stífleikann.
Hann er þó skárri á 17" vetrardekkjunum heldur en 16" sumardekkjunum sem ég rúllaði um á á meðan felgurnar voru í málun.

Image

Image

Image

Image

Fyrir stuttu fór bíllinn í heilsulind Sezars hér á spjallinu.
Eftir að hann málaði Alpinuna mína í fyrra þá kom enginn annar til greina í þetta verkefni.
Mæli klárlega með honum. :thup:
Bíllinn er þó ekki alveg tilbúinn, það vantar nýjan plastlista á húddið vinstra megin ásamt nýjum húddlömum en þá verður framendinn líka orðinn gott sem nýr.

Hér eru svo myndir eins og bíllinn er í dag. 8)

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Næst á dagskrá er svo að skipta um bremsur og kaupa sumardekk.

Vonandi hafi þið gaman að þessari lesningu.

_________________
E36 BMW 316i M-Tech 1998


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 18:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Flottur, hvernig er hann að standa sig í snjó?

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 18:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Stórglæsilegt :) Á alveg eftir að prófa svona mini, efast ekki um að þetta séu skemmtilegir akstursbílar

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 19:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Þessi er orðinn svakalega flottur hjá þer!!

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 19:36 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Posts: 222
Location: Reykjavík
Kristjan wrote:
Flottur, hvernig er hann að standa sig í snjó?


Undirstýrir eins og við var að búast og svo er hann frekar lágur.
Spólvörn og góð dekk hjálpa mikið en svo er bara málið að forðast stærstu skaflana.
Hef ekki lent í neinum vandræðum á þessum vetur en það komu tímar sem mig langaði að kaupa mér jeppa.

En það er miklu skemmtilegra að keyra núna þegar allt er autt.
Alveg eðal innanbæjarbíll. :thup:

_________________
E36 BMW 316i M-Tech 1998


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 28. Feb 2012 22:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40
Posts: 2731
:thup: :thup:
Ávallt velkominn í Heilsulindina mína :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group