Fyrst það eru nokkrir Mini þræðir hér í bílar meðlima þá ætla ég gefa mér það bersaleyfi að pósta þessu.
Eftir að hafa eytt tveimur mánuðum af lífi mínu í að skoða bílaauglýsingar þá kom að því að ég fékk nóg, fór út og keypti bíl.
Það sem ég keypti...
Mini Cooper árgerð 2002, ekinn 101.000 km.
Þessi bíll var innfluttur notaður frá Þýskalandi árið 2005 og var í eigu Waage fjölskyldunnar þangað til í febrúar á þessu ári.
Bíllinn var svo seldur til Vopnafjarðar og var 19 ára gömul stúlka skráð fyrir honum.
Hún átti hann samt bara í rétt rúmar þrjár vikur, tjónaði hann og VÍS borgaði hann út.
Fyrri eigandi keypti svo bílinn tjónaðann af VÍS og tjaslaði honum eitthvað saman til bráðabirgðar.
Dóttir hans notaði svo bílinn þangað til hún stakk af í nám erlendis.
Því fór sem fór og bíllinn hefur nú endað í mínum höndum.
Það er mikill fílingur að keyra þetta og ég er einstaklega sáttur við að hafa fundið bíl sem sameinar kosti smábíls og sportbíls.
Magnað hvað þessir bílar vekja mikla athygli og ég er strax farinn að heyra "flottur bíll" frá ókunnugum fólki.
Bíllinn er þokkalega útbúinn frá verksmiðjunni.
Innréttingin kallast Chili sem á að vera það flottasta af þremur pökkum sem í boði voru (Salt, Pepper, Chili)
Það helsta í aukabúnaði er ASC-T stöðugleikakerfi, Sport fjöðrun, Spoiler, leðurstýri, krómpakki að utan, hálfleðruð sport sæti, þokuljós, loftkæling, ljósapakki (ljós sem lýsir á fæturnar) í innréttingu og Cooper S felgur.
Fyrri eigendur gerðu ýmislegt fyrir bílinn og ber þar hæst að nefna smá klessu á framendann.
Þessi klessa var samt nóg til að þess að VÍS borgaði bílinn út á sínum tíma.
Við þessa klessu sprungu loftpúðarnir, húdd, ljós, plastlistar og stuðari skemmdust einnig.
Það er þó búið að skítmixa megnið af þessu en það er samt nóg eftir á "to do" listanum.
To do listinn:
-Laga Air Condition:
Kerfið er lekalaust og stútfullt af freon en dælan fer ekki í gang.
-Skipta út húddlömum en þær skekktust í klessunni (á lamirnar en líklega óþarfi að græja þetta).
-Innréttingin er rispuð svo ég er að hugsa um að mála hana aftur. (sé til með þetta)
Búið að gera:
-Laga skránna á hurðinni.
-Ný afturljós (annað nýja ljósið brotið

)
-Skipta um diska og klossa allan hringinn.
-Mála felgurnar hvítar og skipt um felgubolta.
-Skipta út skemmdum plast og krómlistum.
-Húdd rétt og málað.
-Ýmislegt bak við stuðarann lagfært eins og þokuljósabracketið.
-Stuðarinn málaður og settir á krómlistar.
-Cooper rendur á húdd.
-Glær stefnuljós i frambrettum.
-Inspektion II hjá Eðalbílum.
-Laga samlæsingar. Ekki hægt að opna farþegahurðina með fjarstýringunni. - Ónýtur central locking actuator. Pantaði nýja læsingu frá Bretlandi og er hún nú komin í bílinn og virkar eins og hún á að gera.
-Rífa símkerfið úr bílnum enda er það ekki að hannað með iPhone í huga. - Komið úr, pantaði nýjan part í innréttinguna til að fela þetta endanlega.
-Eftir klessuna var skipt um annað framljósið og er það nýja mjög áberandi ferskara.
Skipti um perur og ætla að láta þar við sitja.
-Nýir beltastrekkjarar - báðir voru ónýtir og kom alltaf villuljós í mælaborðið.
-Nýtt innrabretti.
-Nýjar rúðuþurrkur að framan og aftan.
-Nýr rúðupiss stútur fyrir afturrúðu.
-Reyndi að laga framsæti því það er komið ágætis slag í sætisbakið. - Reif sætið í sundur og fékk fróða menn með í verkið. Niðurstaðan var sú að það þarf að skipta slitna hlutanum út. Það er hægara sagt en gert enda þyrfti að finna nýja sætisgrind. Líklega er sniðugast að lifa bara með þessu.
Grunar að sjálfvirkar þvottastöðvar hafi séð um þrifinn á þessum bíl undanfarin misseri svo ekki veitti af smá þrifum.
Tók því seinni partinn í þetta og tók svo nokkrar myndir.

Beyglan hér hægramegin á húddinu.


Vonandi hafi þið haft gaman að þessari lesningu.
EDIT: Uppfærði "to do" listann.