Hehhh... ég segi nú bara ekki annað en:
Fólk er f*bbbllll - og það er hart að vera harðfiskur!
Ég var að skoða fimmu (E28 520i bíll) sem á að selja áðan. Það var einhver náungi sem var búinn að fá bílinn lánaðan til að láta vin sinn kíkja á hann. Það er eitthvað að vélinni - allt frá því að vera biluð heddpakkning og út í úrbrædd. Who knows.
En málið er að bíllinn drap á sér hjá náunganum þegar hann var að skila bílnum (búinn að hafa hann í sólahring) svo hann þurfti að draga bílinn þangað sem hann átti að skila honum. Þegar ég kom á staðinn (eigindinn lét mig vita að þeir væru rétt ókomnir) þá blasti við mér mjög svo skondin sjón. Og sorgleg.
Í lokahnykknum í götunni þar sem bíllinn átti að skilast, þar stóð bíllinn ásamt dráttartækinu. Aftan í dráttartækinu var þetta fína reipi (bundið með svona 5 hnútum sem ekki var hægt að leysa) og á hinum enda þess var 1 stykki framstuðari, 1 stykki framsvunta og 1 stykki dráttarlykkja ásamt vænum bita af boddí-inu!
Ég meina...... hvað er að.
Þetta voru einhverjir strákar. Sá sem dró bílinn var bersýnilega ekki búinn að hafa bílpróf í mörg ár.. ef einhver þá. Þeir snérust þarna í kringum sjálfa sig (og mig) og það sem helst brann á vörum þeirra var hvernig þeir gætu skorið reipið í sundur....
Ég var þarna að hjálpa til við að taka framstuðarann undan (reyna að bjarga restinni af honum ásamt stefnu- og þokuljósunum) og fór svo bara.
Þetta endaði með að þeir fóru burtu á bílnum sínum með stuðarann og svuntuna í skottinu, því þeir gátu ekki losað reipið. Ætluðu að reyna að fá að klippa þetta á næstu bensínstöð.
Ég sárvorkenni nú eigandanum.. hvað á maður að gera! Hann í góðri trú að lána bílinn .. og þetta eru launin!
Ussusssusssssss....!
Sæmi


