bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 17:24

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 01:14 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hehhh... ég segi nú bara ekki annað en:

Fólk er f*bbbllll - og það er hart að vera harðfiskur!

Ég var að skoða fimmu (E28 520i bíll) sem á að selja áðan. Það var einhver náungi sem var búinn að fá bílinn lánaðan til að láta vin sinn kíkja á hann. Það er eitthvað að vélinni - allt frá því að vera biluð heddpakkning og út í úrbrædd. Who knows.

En málið er að bíllinn drap á sér hjá náunganum þegar hann var að skila bílnum (búinn að hafa hann í sólahring) svo hann þurfti að draga bílinn þangað sem hann átti að skila honum. Þegar ég kom á staðinn (eigindinn lét mig vita að þeir væru rétt ókomnir) þá blasti við mér mjög svo skondin sjón. Og sorgleg.

Í lokahnykknum í götunni þar sem bíllinn átti að skilast, þar stóð bíllinn ásamt dráttartækinu. Aftan í dráttartækinu var þetta fína reipi (bundið með svona 5 hnútum sem ekki var hægt að leysa) og á hinum enda þess var 1 stykki framstuðari, 1 stykki framsvunta og 1 stykki dráttarlykkja ásamt vænum bita af boddí-inu!

Ég meina...... hvað er að.

Þetta voru einhverjir strákar. Sá sem dró bílinn var bersýnilega ekki búinn að hafa bílpróf í mörg ár.. ef einhver þá. Þeir snérust þarna í kringum sjálfa sig (og mig) og það sem helst brann á vörum þeirra var hvernig þeir gætu skorið reipið í sundur....

Ég var þarna að hjálpa til við að taka framstuðarann undan (reyna að bjarga restinni af honum ásamt stefnu- og þokuljósunum) og fór svo bara.

Þetta endaði með að þeir fóru burtu á bílnum sínum með stuðarann og svuntuna í skottinu, því þeir gátu ekki losað reipið. Ætluðu að reyna að fá að klippa þetta á næstu bensínstöð.

Ég sárvorkenni nú eigandanum.. hvað á maður að gera! Hann í góðri trú að lána bílinn .. og þetta eru launin!

Ussusssusssssss....!

Sæmi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 08:49 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Nov 2002 10:50
Posts: 199
Location: Njarðvík


Í hvað bundu þeir eiginlega reipið í stuðaran eða?
En ef að ég hefði verið eigandinn á þessum bíl þá hefði ég líklega sótt bílinn ekki treyst á einhverja gutta í að draga hann.

_________________
Sævar
BMW 1987 E32 735i
Image
http://www.sinfest.net


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 09:06 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Úfff, þetta er svo típískt. Þeir verða bara að kaupa bílinn!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 09:33 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hehh, já.

Þeir bundu alveg í réttan stað. En það hlýtur eitthvað að hafa gengið á !

Ég meina, þetta rifnar nú ekki af við venjuleg átök!

Meinið er að eigandinn er úti á landi ... :? Svo ekki gat hann vesenast í þessu sjálfur.

Sæmi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 09:37 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Djísess segir maður bara.

Hve mikils virði var þessi bíll?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 09:52 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Það var sett eitthvað undir 100 kallinum á hann


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Feb 2003 23:14 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
jæja.. haldiði að ég hafi ekki bara verzlað gripinn....

:x Mér er ekki við bjargandi.......

En þetta er þvílíkt ömurlegt fyrir eigandann. Þeir sem rifu stuðarann og svuntuna af bara labba í burtu! Gera ekki skít í því sem þeir voru að skemma ! Sumt fólk.........

Sæmi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 01:06 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
OK, hvað áttu marga bíla núna???????????????

Afhverju keyptir þú ekki 525e bílinn?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 09:50 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Eeeee, þetta er þá bíll númer 9 (ekki í heildina, heldur í augnablikinu sko).

:oops:

Þessi lítur mun betur út heldur en 525e bíllinn. Og þessi hentar betur. Þessi verður gerður að 528i. Hann er með leðri, aksturstölvu, M-stýri og fleira. Betri kostur en 525e bíllinn.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 11:36 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Sæmi... ég held að þú átt við vandamál að stríða. Svokallaða BMW fíkn... spurning hvort þú ferð ekki bara í meðferð út af þessu. :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 11:37 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Posts: 1690
Location: BIRK
Váááá, 9 stykki. Þér verður ekki viðbjargandi úr þessari bíladellu :lol:

_________________
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 12:58 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ehhh.. :oops:

Mig aumann...

Ég bara varð ... :roll:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 13:13 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
saemi wrote:
Ég bara varð ... :roll:


Jamm, stundum bara verður maður ...

:-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Feb 2003 19:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Það er svakalegt álag á þér maður. :wink:

Ef ég væri svona... þ.e. að kaupa þá BMW-a sem ég sé þá ætti ég örugglega Alpina B10 bílinn sem er hérna og Bláa M3 blæjuna. En sem betur fer gat á haldið í mér. :roll:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Feb 2003 10:55 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hehe, jámmz.

Það er naumast að þú átt af pening. Ég hef ekki efni á svona dýrum bílum í safnið mitt ....

:cry:

:lol:

sæmi


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group