bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 02. May 2025 14:04

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 69 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
 Post subject: BMW E39 540i - Seldur
PostPosted: Thu 06. May 2004 22:38 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Posts: 316
Location: Ísland
Til sölu: BMW 540i

Image

Árgerð 08.1996 (E39)
Skoðaður 2005
Ekinn 124 þús. km.
Þjónustubók
Dökkgrænn (Oxfordgrün-metallic)
4 sumardekk á 16” BMW álfelgum (Spoke styling 33)
Dunlop SP Sport 2000E 225/55 R16 (slitin)
4 vetrardekk á 16” BMW álfelgum (Spoke styling 33)
Pirelli Snowsport 225/55 R16 (lítið slitin)

Vél:
    - V8, 4398 cm3
    - 210 kW (286 hö.) við 5400 sn/min.
    - 440 Nm við 3600 sn/min.
    - 0-100 km/h: 6,4 sek.
    - 80-120 km/h: 8,1 sek.
    - Eyðsla á Íslandi: sumar 12,9 l/100 km, vetur 14,5 l/100 km
Öryggisbúnaður:
    - Spólvörn
    - 4 loftpúðar
    - Regnskynjari
    - Þjófavörn
    - ABS bremsur
    - Þokuljós
Þægindi:
    - Sjálfskipting, 5 þrepa með sportstillingu og steptronic
    - Hraðastillir (cruise control)
    - Loftkæling, tölvustýrð og tvískipt
    - Leðuráklæði, ljósgrátt
    - Hiti í sætum
    - Armpúði
    - Gúmmímottur
    - Fjarstýrðar samlæsingar
    - Útvarp og segulband
    - 6 diska CD magasín
    - Rafdrifnar rúður
    - Rafdrifnir speglar
    - Vökvastýri
    - Velti- og aðdráttarstýri
    - Aðgerðarstýri
    - Skíðapoki


Bíllinn var framleiddur í BMW verksmiðjunni í Dingolfing í Þýskalandi 27. febrúar 1996. Hann var síðan sendur frá verksmiðjunni 18. mars 1996 til BMW umboðsaðila í Salzburg í Austurríki. Í Austurríki var bíllinn fyrst skráður 9. ágúst 1996.

Bíllinn hefur fengið þjónustu alla tíð eins og sjá má í þjónustubókinni. Aðeins einn eigandi var að bílnum í Austurríki. Við erum aðrir eigendur og keyptum við bílinn í janúar 2004 á meðan við bjuggum í Þýskalandi. Við fluttum hann síðan hingað heim og bíllinn kom á götuna í febrúar 2004.

Eins og sjá má af tölum um bílinn hefur hann yfir gríðarlegu afli að ráða. Hröðunin er mikil og það eru ekki margir bílar á götunni hérna á Íslandi sem eru sneggri en hann. Þetta afl er þó alltaf "smooth" því sjálfskiptingin er mjög vel hönnuð. Í venjulegri D stillingu þá er allt mjúkt, bíllinn skiptir sér mjög fljótt upp og það finnst nánast ekkert fyrir skiptingunni. Síðan er hægt að setja í S stillingu og þá heldur hann sig í sama gírnum upp á hærri snúning og er viljugri að skipta sé niður við inngjöf. Í S stillingur fer skiptingin ekki ofar en í fjórða gír. Í þjóðvegaakstri líður bíllinn bókstaflega áfram. Þægilegt er að krúsa á svona 110 km/klst. og þá er vélin að snúast ca. 1.900 sn/min.

Verð: 1.890 þús. (ekkert áhvílandi)
Staðgreiðsluverð: 1.700 þús.
Athuga öll skipti

Nökkvi Pálmason
sími: 564 0129
GSM: 862 0106
E-Mail: nokkvi@hotmail.com

Image Image Image

Image Image Image

Image Image Image

Image Image Image

Image Image Image

_________________
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image


Last edited by Nökkvi on Tue 15. Jan 2008 18:31, edited 7 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. May 2004 22:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
MJÖG.........fallegur bíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. May 2004 22:48 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Því er ekki hægt að neita, smekkleg kirkja líka :D Vogur kópa rules :twisted:

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. May 2004 22:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Posts: 5953
Location: Akranes
Frábær bíll...Frábær myndataka...Frábær auglýsing...
....:clap:............... :clap: ..........................:clap: ..........

Mjög glæsilegur bíll hjá þér og flott að fá söguna svona
frá framleiðsludegi...

_________________
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 06. May 2004 23:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Glæsilegur bíll og ég verð að hrósa fyrir þessa auglýsingu :)

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 00:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Liturinn er ****MAAAAAAAGNAÐUR*****

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 08:22 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Ég verð bara að hrósa þér fyrir bestu auglýsinguna sem hefur komið inn á BMWKraft og mættu aðrir taka þig til fyrirmyndar ;)
Glæsilegur bíll líka

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 09:58 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Sehr gesmekklegt.

Mjög fallegur vagn. Vantar bara aðeins aggressivari sumarfelgur og þá væri þetta alveg bjútífúll.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 09:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
saemi wrote:
Sehr gesmekklegt.

Mjög fallegur vagn. Vantar bara aðeins aggressivari sumarfelgur og þá væri þetta alveg bjútífúll.


Nokkurn veginn það sem ég ætlaði að skrifa, og myndin sem er tekin fyrir framan kirkjuna kemur mjöög vel út. ;)

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 10:01 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
saemi wrote:
Sehr gesmekklegt.

Mjög fallegur vagn. Vantar bara aðeins aggressivari sumarfelgur og þá væri þetta alveg bjútífúll.


mér finnst þessar felgur einna flottastar EF þær eru á hvítum bíl 8) En rosalega er þetta vönduð auglýsing og auðvitað glæsilegur bíll!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 10:16 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Posts: 316
Location: Ísland
Takk fyrir góð komment....

og vonandi skila þau sér í sölu :wink:

Felgurnar eru smekksatriði og þetta er eiginlega eins orginal og það getur verið. En það eina sem þarf til að gera bílinn einn af þeim flottari er að setja 18" undir hann og hann er tilbúinn. :lol:

Með von um að kaupandi finnist,
kveðja

_________________
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 11:36 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Posts: 316
Location: NY
Verð að taka undir fyrri ummæli: Að öllum öðrum ólöstuðum - þetta er besta auglýsing sem ég hef séð á þessu spjalli :D . Glæsilegt framtak sem mun ábyggilega skila sér í áhuga á bílnum!

Ekki spillir verðið heldur fyrir - þetta er góður díll f. 4,4l V8 über Luxus-cruiser!

Verst þykir mér að ég fékk aldrei tækifæri til að sjá bílinn hjá þér í persónu (viltu ekki bara bíða með söluna út sumarið ;) )- nú vonum við bara að þú komir honum í hendur á góðum áhugamanni!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 12:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Eðalbíll, gangi þér vel að selja hann.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 12:22 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Posts: 1121
Location: Rvk
Ohh flottur bíll... Innréttingin er æði! góð auglýsing... EN mér finnst þessi litur alveg hræðilegur :( :? Alveg sama á hvernig bíl hann er...

Er samt viss um að hann fari fljótlega... Mjög góður prís finnst mér!

_________________
Núið:
BMW 730d '04


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. May 2004 12:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Mér finnst liturinn flottur og þessi auglýsingin er mjög góð.. Svona á þetta að vera :P

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 69 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 97 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group