Ég lenti í þessu sama ,,,, dsc fór af og ég fékk það ekki á með nokkru móti fyrr en eftir að ég kom heim og bíllin kólnaði og ég þurfti að skreppa smá 20 mín seinna þá var allt í þessu fína
Málið er að heilinn sem stjórnar þessu getur sjóðhitnað þegar skriðvörnin er að vinna mjög mikið og spólvörnin er á fullu og þegar það skeður slær þetta kerfi einfaldlega út og verður virkt aftur með því að ýta á takkan og hitinn er orðin eðlilegur
Ég var að koma Suðurstrandaveginn frekar greitt ekið og leikið sér enda einbíla þarna í þæfingsfærð þegar þetta skeði
Prufaði svo í Hálkuni í fyrradag að láta spól og skriðvörnina finna vél fyrir því í innanbæjarakstri og þetta sló út aftur eftir 20 mín í miklum átökum

en kom inn strax og það fékk að kæla sig og er alveg til friðs í eðlilegum Ömmuakstri

Mér finnst bara svo gaman að láta reyna á bílinn og getu hans í hálkuni á Langferðum
40 mín frá Selfoss til Grindavíkur suðurströndina held ég að sé fjári góður tími miðað við glerhálku og þæfing ,en tak það fram að ég mætti einum bíl eftir að kom inn á sjálfan veginn frá Þorlákshöfn að Kísuvík engum eftir það til Grindavíkur
Þetta er snilldarvegur breiður og góður og sparar okkur suðunesjamönnum sem þurfum að skreppa austur fyrir fjall að fara gegnum Reykjavík og Traffíkina þar