Ég s.s. fékk DSC+Handbremsu ljósin í gang í miðjum akstri núna í gær í þessum blessaða snjóstormi sem gekk yfir. Ég lét svo lesa af honum í dag, og fyrst um sinn þá voru errors á öllum fjórum wheel speed sensors og steering angle sensornum. Eftir að hafa strokað þessar villur út og keyrt niður og upp götuna hjá þeim þá var það bara steering angle sensorinn eftir sem að gaf error.
Gott og vel. Þeir segja mér að það þurfi þá að panta nýjan frá umboðinu -- einhver 70+þús kall bara hluturinn. Ég greenlighta það með smá fýlusvip og hann ætlar að vera í bandi þegar pöntunin kemur.
Svo þegar ég kem heim þá fer ég að googla þetta error, og sé að fólk hefur verið að lenda í því að fá þetta error í snjó, og/eða ef að hjólastilling er ekki 100%, og að þeir hafi getað fixað þetta bara með því að hjólastilla (ef þarf) og recalibratea þennan sensor sem TB var nú nýbúið að panta fyrir mig nýtt.
Með öðrum orðum, þá sýnist mér á því sem ég hef lesið hérna á E46 fanatics og annarstaðar, að það að rífa draslið úr og henda nýju í (sem er svo calibrated) sé ekkert endilega það sniðugasta til að byrja með, heldur að jafnvel skoða hjólastillingu, og að svo calibratea unitið sem er nú þegar í bílnum. Mig líka grunar svolítið að þetta gæti jafnvel verið hjólastilling, því að gatan hjá mér hefur verið með ansi skuggalegum hjólförum síðustu daga, djúp og hörð, og það hefur oft bara verið eins og að keyra á kant.
En það er spurning hvað ég ætti að gera. Kannski að rjúka til þeirra í TB eldsnemma á mánudaginn og láta þá cancella þessa pöntun, og þá láta hjólastilla bílinn og sjá hvort það geri trixið? Það er allavegana ansi blóðugt að vera borga 100+ þúsund í að replacea einhvern part sem er kannski alveg í fínu lagi, og mér finnst að þeir hefðu nú alveg mátt stinga upp á þessu við mig -- EF þetta er rétt sem ég segi hérna. Ég þykist ekki vera neinn expert, ég er bara að lepja upp hérna sem aðrir hafa sagt á erlendu spjallborðunum.
TLDR: Fékk error, fór til TB, þeir segja mér að panta varahlut sem ég geri, en þegar ég fer heim og googla þá sé ég að það þarf kannski ekki.

Allar almennar bílaviðgerðir 694-3035 