Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby gjonsson » Wed 04. Jan 2012 01:31

Ég er með smá spurningar varðandi loftþrýstingsskynjara í Mini Cooper R50.

Lenti í því í dag að keyra í einhverja holu sem varð nóg til þess að eitt dekkið fór að leka.
Það á að vera eitthvað loftþrýstingsskynjarakerfi í bílnum en samt kom engin viðvörun þótt dekkið væri orðið gott sem flatt.
Þegar dekkið var tekið af felgunni voru engin ummerki um loftþrýstingsskynjara í ventlinum.
Það er hinsvegar ansi fallegur hnappur milli sætana sem á að vera til endurstilla þetta svo eitthvað tengt þessu kerfi hlýtur að vera í bílnum.

Ég fór því á google og fékk þar misvísandi upplýsingar.
Ég er farinn að hallast að því þetta sé tengt ABS skynjurunum en svo eru aðrir sem vilja meina að það þurfi loftþrýstingsskynjara í felgurnar og eru jafnvel að selja slíka á 200$ settið.

Ég á því miður ekki handbókina sem fylgdi með bílnum en ég endurstilli kerfið eftir viðgerðina samkvæmt upplýsingum frá Hr. Google.
Veit einhver hvernig þessi kerfi virka nákvæmlega?
E36 BMW 316i M-Tech 1998
gjonsson
Kassabílstjóri
 
Posts: 222
Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Location: Reykjavík

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby thisman » Wed 04. Jan 2012 10:26

Ég er með svona kerfi í E92 sem virkar (vældi á mig í sumar þó svo að ég sæi ekkert að dekkjunum, hélt það væri bara einhver nemi að stríða mér - komst að því morguninn eftir að svo var ekki þegar allt hafði lekið öðru framdekkinu) þrátt fyrir að enginn skynjari sé í sjálfum felgunum. Dekkjaverkstæðið vildi meina að þetta tengdist einhverjum útreikningum á því að annað dekkið snérist örlítið hraðar þegar misræmi væri í þrýstingi - hvort það er rétt veit ég ekki en ég hef a.m.k. ekki getað fundið frekari upplýsingar um það.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby saemi » Wed 04. Jan 2012 11:05

Ég hef allavega séð svona skynjara í felgum.

Kannski eru þetta 2 kerfi.

Svo má líka vera að bíllinn sé með þessu kerfi en skipt hafi verið um felgur og þær ekki lengur með skynjurum, eða mögulega að bíllinn hafi ekki komið með skynjurum í felgum þó búnaðurinn sé til staðar í bílnum
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby slapi » Wed 04. Jan 2012 12:45

Ameríkubílar eru með skynjara í dekkjunum, evrópubílar reikna þetta útur ABS
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby Angelic0- » Wed 04. Jan 2012 16:30

Ég giska á að hans bíll sé EURO, þar sem að þessi villa kom upp þegar að dekkið fór að leka...

Dekkin þurfa þá að vera með þeim þrýsting sem að er gefinn upp í hurðarstafnum og í réttum stærðum (ef að þetta er staggered setup, sem að ég efa) til þess að kerfið virki rétt...

svo er kerfið sennilega endursett með því að halda takkanum inni... og þá þarftu að keyra smá spöl meðan að bíllinn er að reikna inn snúning á dekkjunum m.v. stöðu stýris og allt það...
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby thisman » Wed 04. Jan 2012 16:40

Ég held þú getir basically verið með hvaða stærð/þrýsting sem er - maður núllstillir bara og ef eitt dekkjanna verður öðruvísi en við núllstillingu þá fer græjan að væla. En um leið og eitt dekk linast umfram hin þá byrja lætin. Hefur allavega verið mín reynsla, og hann er staggered hjá mér og ekki alltaf á original stærðum.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby gjonsson » Wed 04. Jan 2012 17:26

Bíllinn er EURO svo það passar að þetta sé tengt ABS kerfinu. Ég er einnig að notast við OEM felgur en á örlítið stærri dekkjum.
Þetta voru allt saman ameríkanar sem voru að selja loftþrýstingsskynjarana á netinu svo maður er amk komin með svör við þeirri spurningu.

Samkvæmt því sem fann á google þá endurræsir maður kerfið með því að svissa á og halda takkanum inni.
Þá logar ljósið í nokkrar sek og þegar það slokknar er bíllinn klár í calibration og það á að duga að keyra eðlilega um án þess að spóla og þess háttar.
Þar sem að ABS mælir bara hraðann á dekkjunum þá ætti dekkjastærð og felgugerð ekki að skipta máli svo framarlega sem þau séu öll eins.

Ég hef ekkert átt við þetta síðan ég keypti bílinn og mig grunar sterklega að fyrri eigandi hafi heldur ekki gert neitt þessi tengt.
En núna er jafn loftþrýstingur í öllum dekkjum og kerfið hefur verið endurstillt.

Vonandi er þetta farið að virka eðlilega.
Það væri mjög kærkomið þar sem ekkert varadekk er um borð enda rúllaði apparatið á run flat dekkjum úr verksmiðjunni.
E36 BMW 316i M-Tech 1998
gjonsson
Kassabílstjóri
 
Posts: 222
Joined: Wed 13. Sep 2006 16:21
Location: Reykjavík

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby Subbi » Sun 08. Jan 2012 00:36

ABS og DSC fór út hjá mér við að minnkaði um 7 pund í einu dekkinu þeas tölvan fyrir ABS og DSC plöggaði út vegna mismunandi snúningshraða á milli afturdekkja og á stöðugum 110 km hraða sem ruglaði hana því bíllinn var ekki að spóla :) bætti lofti í dekkið drap á og startaði beint en allt eins,, drap þá aftur á og svissaði á og beið þangað til ljósið hvarf startaði þá og allt í fínu

Hinsvegar ef skynjarar eru á enda innblástursrörs sem ventillinn fer í þá fer það ekki á milli mála ,,þeir eru á stærð við eldspýtustokk þessir skynjarar ,var með þetta í 19 tommuni hjá mér og tók þessa skynjara úr þeim
BMW E38 735i 2001 Cosmosschwarz Metallic
BMW E12 520i 1979 154 Brasilbraun Brazil Brown Metallic Brown Löngu Grafinn og Týndur
User avatar
Subbi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 311
Joined: Thu 24. Dec 2009 11:20
Location: Agadir Marocco

Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum

Postby crashed » Sun 08. Jan 2012 02:49

það er til þrjár gerðir að þessu
1. er abs útreikningar
2. er þráðlaus kubbur sem er í felguni
3. er þráðlaus kubbur sem er tengdur við loftpíluna í felguni, og getur hann verið inní felgu eða inbygður í loft ventlinum

enn vandamálið eru blessuð dekjaverkstæðinn, þegar þeir takka dekkin af felgunum og gera það óvarlega eða vita ekki af þessu kerfi að þá tekst þeim ansi oft að skemma þennan búnað og eru ekki alltaf að láta vita af þessu, og svo nátúrulega þeir sem selja felgurnar og setja aðrar undir ánn þess að fatta að takka þennan búnað úr, veit að þegar ég keyfti dekk undir E36 sem ég átti að þá voru svona kubbar í öllum felgunum en eingin svona búnaður í bílnum
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests