Ég er með smá spurningar varðandi loftþrýstingsskynjara í Mini Cooper R50.
Lenti í því í dag að keyra í einhverja holu sem varð nóg til þess að eitt dekkið fór að leka.
Það á að vera eitthvað loftþrýstingsskynjarakerfi í bílnum en samt kom engin viðvörun þótt dekkið væri orðið gott sem flatt.
Þegar dekkið var tekið af felgunni voru engin ummerki um loftþrýstingsskynjara í ventlinum.
Það er hinsvegar ansi fallegur hnappur milli sætana sem á að vera til endurstilla þetta svo eitthvað tengt þessu kerfi hlýtur að vera í bílnum.
Ég fór því á google og fékk þar misvísandi upplýsingar.
Ég er farinn að hallast að því þetta sé tengt ABS skynjurunum en svo eru aðrir sem vilja meina að það þurfi loftþrýstingsskynjara í felgurnar og eru jafnvel að selja slíka á 200$ settið.
Ég á því miður ekki handbókina sem fylgdi með bílnum en ég endurstilli kerfið eftir viðgerðina samkvæmt upplýsingum frá Hr. Google.
Veit einhver hvernig þessi kerfi virka nákvæmlega?

