Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Vlad » Sun 01. Jan 2012 21:58

Jæja þannig er mál með vexti að ég fór með bílinn minn (bmw e34 525ia) í viðgerð 2009 þar sem var skipt um vatnskassa því hinn var ónýtur. Eftir það hef ég náð að keyra 5000-6000 km þangað til að hann mýgur af sér vatninu aftur og þá var skipt um einhverjar hosur og var það til friðs þar til í október áður en hann fór af númerum (og já það er kælivökvi á honum núna svo þið álítið mig ekki algjöran fávita). Þegar að hann hinsvegar pissar því af sér, þá lekur vatnið út um eitthvað lítið gat á plasthlíf undir vatnskassanum, og meðfram forðabúrinu einnig.

Ég get nokkurnveginn útilokað það að þetta sé heddpakkning því:

* ég hef aldrei verið að keyra hann þar til hann fer í rauða.

* Enginn hvítur/bláleytur reykur úr pústinu.

* Hann pissar alltaf af sér vatninu, semsagt það fer ekki inn á vélina og býr til jógúrt.

* Hann gengur á öllum.

Og já það er grænn kælivökvi á honum? Gæti það kannski haft eitthvað að segja þar sem að ég hef heyrt að sumar tegundir séu veikar fyrir því ef það er ekki rétti vökvinn samkvæmt framleiðanda?

Eða er ég bara algjör auli og það þarf einungis að skipta um vatnsdælu eða viftukúplingu?

Og já, megið hlæja að mér og hvaðeina svo fremi sem þið hafið getið gefið góð ráð :lol:
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Zed III » Sun 01. Jan 2012 22:34

dælan og kúplingin er eitthvað til að skoða ef kælingin er ekki nægjanleg.

er ekki einhver hosan enn að leka eða þá bara kassinn sjálfur ?
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Angelic0- » Sun 01. Jan 2012 22:37

Lekur þetta úr drain-inu á kassanum, eru þá O hringirnir á "blá-a pinnanum" orðnir slappir :?:

Ef að kassinn er sprunginn, þá er augljóslega að myndast þrýstingur í kerfinu, blæs út í vatn... það er ekki algilt að ef að heddpakkning fer að það blandist olía og vatn (eða öfugt)...

Sem dæmi var farin heddpakkning í E38 750i en það blés bara á milli 2 cyl, og þar af leiðandi var hann bara þjöppulaus á þeim 2 :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Vlad » Sun 01. Jan 2012 23:14

Zed III wrote:dælan og kúplingin er eitthvað til að skoða ef kælingin er ekki nægjanleg.

er ekki einhver hosan enn að leka eða þá bara kassinn sjálfur ?


Ég bara neita trúa því að 2 ára gamall kassi keyrður um 12 þús kílómetra sé sprungin/farinn að leika.
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Angelic0- » Sun 01. Jan 2012 23:19

Vlad wrote:
Zed III wrote:dælan og kúplingin er eitthvað til að skoða ef kælingin er ekki nægjanleg.

er ekki einhver hosan enn að leka eða þá bara kassinn sjálfur ?


Ég bara neita trúa því að 2 ára gamall kassi keyrður um 12 þús kílómetra sé sprungin/farinn að leika.


Ef að það myndast þrýstingur í kælikerfinu þá gerist það...

Kassinn í OZ390 sprakk t.d. vegna þess að hann hafði verið fylltur með of miklum kælivökva og náði að ofhitna eitt skipti.. þá myndaðist það mikill þrýstingur að það kom sprunga á kassann að mig minnir..

Hannsi kannski útskýrir þetta betur, en mig minnir að þetta hafi verið á þessa vegu :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby agustingig » Mon 02. Jan 2012 08:11

Veistu hvort þeir hafi fært forðabúrið á milli kassana,, Ég lenti í þessu í sumar þegar minn var með vatnskassa vesen,, Þá skipti ég um kassa og færði forðabúrið á milli,, En o-hringurinn neðaná forðabúrinu settist ekki ofaní "grúvið" Sem hann á að sitja í.. Myndi kíkja á það þar sem mér sýndist alltaf vera leka einhverstaðar innanúr plastdraslinu sem forðabúrið er inní,, Þurftum bara að (WDfjörutíu-a) O-Hringinn áður en að forðabúrið var lamið ofaní kassann :thup: Myndi skoða það allavega :wink:
Image

Ágúst ingi S:823-7971

1992 E36 325i :S
User avatar
agustingig
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2829
Joined: Mon 27. Apr 2009 17:50
Location: Elskum þessar mellur

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby Vlad » Wed 04. Jan 2012 11:39

Góður punktur ágúst.

En annars þá þakka ég góð svör :)
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby T-bone » Sat 07. Jan 2012 12:00

Eg lenti i þvi a m50b20 e34 hja konunni að vandamalið var svipað. Hann ældi alltaf af ser vatninu. Stundum heyrði maður bubbla a honum þo að hitinn væri ekki einu sinni kominn upp i miðju.

Naði loks að fa hann til að ganga flott, keyrði hann 3-4000 km, for a biladaga og eg veit ekki hvað. Svo tok hann uppa þessu aftur, var að hleypa vatninu utaf ser, og mer fannst það vera með forðaburinu. Skoðaði það betur, og var þa ekki viss hvort það væri að leka með forðaburinu, eða einfaldlega utum oryggið a tappanum. Reyndo nokkrum sinnum að lofttæma, eins og hafði virkað i 3-4000 km, en það gekk ekki. Þa var profað að skipta um vatnskassa, og viti menn... Þa for motorinn að framleiða cafe cream youghurt :(

Það var aldrei neitt sem benti til þess að heddpakkningin væri farin, nema vatnsvesenið.

Sem sagt, þo svo að han se ekki að reykja, eða hleypa vatni i oliuna, þa myndi eg skoða þetta. Ætti að eiga vatnskassa til að lana þer að prufa ef þu vilt.

Vona samt að þetta se ekki keisið hja þer ;)
E30 '86 325 M50 Powered
Image
User avatar
T-bone
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1023
Joined: Sun 23. Sep 2007 12:30
Location: Hafnarfjörður

Re: Ofhitunarvandamál #56 [e34]

Postby BjarkiHS » Sat 07. Jan 2012 17:15

Ég var með 520 með m50 og þar var vatnsdælan með plastspaða til að dæla vatninu.

Ég myndi kíkja á vatnslás+dælu og þjöppumæla.
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests