Ég get nokkurnveginn útilokað það að þetta sé heddpakkning því:
* ég hef aldrei verið að keyra hann þar til hann fer í rauða.
* Enginn hvítur/bláleytur reykur úr pústinu.
* Hann pissar alltaf af sér vatninu, semsagt það fer ekki inn á vélina og býr til jógúrt.
* Hann gengur á öllum.
Og já það er grænn kælivökvi á honum? Gæti það kannski haft eitthvað að segja þar sem að ég hef heyrt að sumar tegundir séu veikar fyrir því ef það er ekki rétti vökvinn samkvæmt framleiðanda?
Eða er ég bara algjör auli og það þarf einungis að skipta um vatnsdælu eða viftukúplingu?
Og já, megið hlæja að mér og hvaðeina svo fremi sem þið hafið getið gefið góð ráð


