
Upphaflega er þetta BMW E30 320iC og kemur hann þannig til landsins 2001. Stuttu seinna eignast arnib bílinn og í bílinn fer M20B25 mótor úr 325iS bíl (US675/WBAAA1306K4142915) sem Gunni GST átti. Blæjubílarnir eru allir búnir diskum allan hringinn og sverari swaybar þannig að eini munurinn á 320iC og 325iC er vélarstærðinn svo þennan bíl má kalla með réttu 325iC.
Upphaflega er þessi bíll seldur nýr á Ítalíu og á fyrsti eigandinn bílinn í c.a 7 ár, þá kemur til skjalana Íslendingur sem kaupir bílinn á hann úti á Ítalíu og kemur með hann heim með sér 2001. arnib kaupir síðan bílinn af honum. Það er skemmtileg tilviljun að bíllinn hefur verið í eigu Kraftsmeðlima síðan og er ég 9 eigandi bílsins frá upphafi. Það er ótrúlega mikil saga sem er til um bílinn í þráðum meðlima í gegnum tíðinna.
Skilst að blæjan sé eithvað yngri en bíllinn þar sem hún var skemmd úti.
M-Tech ll kit fer á bílinn 2006 ( ekki hliðar ).
Nýjar Borbet A felgur fara á bílinn 2006.
Bíllinn er heilsprautaður 2007.
Mótor tekinn upp frá A-Ö 2009.

Bíllinn er vel búinn og ótrúlega heill hvar sem litið er á hann.
Mótor:
BMW E30 325iC árgerð 1989
M20B25 170hp / 220 Nm
M30 AFM
JimC kubbur
KN loftsía í OEM boxi
Custom púst
Ground control:
Powertech lækkunarsett, gormar/demparar 60mm/40mm
Stýrisdobblari
3.71 LSD með póly fóðringu
Veltibogi sem hægt er að setja í
Borbet A 9x16" 215/40
Hersteller King Alpina 7x15" 195/55
Útlit:
M-Tech ll kit
Shadowline
Hella dark aðalljós
Innrétting:
Svört sport leðurinnrétting 2x2
M-Tech l 390mm stýri
OBC l
Check control ( á Ítölsku
Rafmagn í rúðum
Rafmagn í speglum
Hitablásari fyrir afturrúðu
AIWA CD
Alpina Type R og Type S hátalarar
OEM tweeters
http://www.scchosting.com/e30/M-Technik%20II.pdf
Það sem ég hef þegar gert er að setja í hann Hella Dark aðalljós, keypti Schmiedmann tau mottusett svart, setti aðrar miðjur í Borbet A felgurnar, setti nýja leðurpoka á gírskipti og handbremsu auk þess að setja ný leðurhnúa á gírskipti og leður handbremsuhandfang. Það er fleira til sem fer í við tækifæri eins og M-Tech ll stýri 370mm með M lituðum saum, ný þokuljós, OBC ll og BMW Bussness CD.
Ég ætla ekki að gera miklar breytingar á bílnum bara aðeins að snýta honum.
Taka allar perur í mælaborði og kaupa allar innréttingahluti og plasthlífar sem hafa tapast með árunum og er reyndar byrjaður á því. Taka stýrisdobblarann úr og póly fóðringuna úr drifinu, kaupa shortshift og laga bara svona eiginlega allt sem ég sé.
Mynd frá fyrsta dekurdeginum

"Gamli og nýji" ekki slæm innkeyrsla þetta






