E34 540i sprengingar - backfire

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E34 540i sprengingar - backfire

Postby Danni » Fri 23. Sep 2011 11:05

Ég hef tekið eftir þessu upp á síðkastið og í gær ákvað ég að taka smá test. Þegar bíllinn er búinn að vera á snúning í smá stud, t.d. bara að keyra með hann í ca 3000rpm, þá fara að koma svona backfire drunur úr pústinu þegar ég slæ af og síðan ef ég gef rólega inn aftur þá kemur sprenging í pústinu.

Þetta er alveg voðalega flott og töff hljóð og allt það en einhvernveginn finnst mér eins og þetta sé eitthvað sem ég vil samt ekki heyra úr svona bíl, eins og að hann sé að fá of mikið bensín.

Það er að vísu búið að taka hvarfakútana úr og setja fjórar túbur í staðinn, var þannig þegar ég fékk hann. Gæti það verið ástæðan?

Er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af?
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby gstuning » Fri 23. Sep 2011 11:08

Hversu smooth er vélin þegar þú keyrir við 3000rpm?

hljómar eins og bensín spíssi sé lekandi of miklu bensíni sem brennur svo ekki fyrr enn í pústinu eða slappt kerti sem gerir það að verkum að bensínið kemst í gegn enn brennir ekki fyrr enn í pústinu.

kemur þetta ef þú ert t.d við 4k rpm og slærð alveg af og lætur vélin bremsa niður í 3k rpm?
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby hauksi » Fri 23. Sep 2011 11:25

Er ekki líklegra að annaðhvort sé leki á loftinntaki eða air flow sensorinn sé eitthvað bilaður.

Án þess að hafa mikið vit á þessu en gerist þetta ekki þegar það fer meira loft inná vélina en bensín? Getur líka gerst ef það fer meira bensín en ætti hann þá ekki að sjá eldtungur útúr pústinu.

Svo er líka spurning hvort þetta sé ekki að gerast útaf því að það er búið að taka hvarfakútana.
540iA e34 - seldur
330Ci e46 - seldur - RIP 2013 hefði aldrei átt að selja :(
540iA e39 - seldur - RIP 2012
hauksi
Kassabílstjóri
 
Posts: 245
Joined: Wed 25. Oct 2006 12:31

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby Einsii » Fri 23. Sep 2011 11:47

Ef þetta er útaf lélegu kerti þá myndi ég skoða ventlalokspakningar.
Auðvelt að losa háspennukeflin ofan af kertunum og sjá hvort þar sé olía, þá er pottþétt þetta algenga ventlalokspanningar vandamál að skemma kertin.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby Danni » Fri 23. Sep 2011 12:00

Gunni, ég þarf bara að athuga hvort þetta gerist ef ég læt vélina bremsa niður í 3k rpm úr 45.

En annars gerði ég hljóðupptöku með símanum mínum í gær þar sem þetta heyrist í kringum 00:35-00:40 best:

http://myndasafn.bmwkraftur.is/v/medlim ... e_amr.html

Þetta er í .amr og ég gat spilað með real player. Síminn tekur ekki upp í MP3.

Annars þarf ég greinilega að fara að kíkja á kertin og ventlaloks pakkningarnar og svona. Allar hosur eru í lagi svo hann virðist ekki vera að draga inn falskt loft. Spurning að kíkja með hann til Eðalbíla og láta tengja hann við tölvu til að athuga hvort einhverjir skynjarar eru að klikka, þó að það kemur ekkert check engine ljós.

Ef allt virðist í lagi þá skrifa ég þetta bara á útfærsluna á pústinu.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby gstuning » Fri 23. Sep 2011 12:06

Ástæðan fyrir að ég spyr um smoothness er hvort að það sé augljóslega eitt kefli, kerti eða álíka að valda þessu.

Ástæðan fyrir að ég spyr um hvort þetta komi þegar er véla bremsað er til að sjá hvort að TPS sé í lagi og sé að cutta allt bensín eins og á að gera.

Hversu lítið eða mikið ertu á gjöfinni þegar þetta gerist?
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby Danni » Fri 23. Sep 2011 12:20

Bíllinn er alltaf smooth, hef ekki tekið eftir neinu öðru. Vélin hikstar ekkert eða neitt þannig þegar þetta gerist.

Þegar ég hugsa til baka þá hef ég bara tekið eftir þessu þegar ég er að keyra venjulega, en ég hef aldrei tekið eftir þessu þegar ég er að gefa hressilega í.

Og ég þarf að kanna þetta með að láta hann bremsa sig niður til að geta svarað hvort spreningarnar koma þá.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: E34 540i sprengingar - backfire

Postby sosupabbi » Fri 23. Sep 2011 15:02

740i(M60B40) hjá mér var með opna endakúta og hann gerði þetta alltaf ef maður lét snúninginn droppa og gaf svo smá inn eftir 1000rpm fall ca, hann virkaði alltaf eðlilega og gekk alltaf smooth á öllum snúningum og lék ekki neinu svo ég hugsa að þetta sé vel eðlilegt miðað við mína reynslu (keyrði hann btw 40-50þ.km og þetta var alltaf svona). Miðað við hvað pústið hjá þér er svipað opið og var á mínum hugsa ég að það sé hugsanleg ástæða fyrir þessu án þess að leggja það sem var sagt á undan í efa.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 17 guests