Ég hef tekið eftir þessu upp á síðkastið og í gær ákvað ég að taka smá test. Þegar bíllinn er búinn að vera á snúning í smá stud, t.d. bara að keyra með hann í ca 3000rpm, þá fara að koma svona backfire drunur úr pústinu þegar ég slæ af og síðan ef ég gef rólega inn aftur þá kemur sprenging í pústinu.
Þetta er alveg voðalega flott og töff hljóð og allt það en einhvernveginn finnst mér eins og þetta sé eitthvað sem ég vil samt ekki heyra úr svona bíl, eins og að hann sé að fá of mikið bensín.
Það er að vísu búið að taka hvarfakútana úr og setja fjórar túbur í staðinn, var þannig þegar ég fékk hann. Gæti það verið ástæðan?
Er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af?

