E39 540i '02

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: E39 540i '02

Postby fart » Fri 09. Sep 2011 19:14

Vel gert, algjör keeper
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: E39 540i '02

Postby carhartt » Sat 10. Sep 2011 17:05

sá þennan oft í keflavík þegar að ég var í grunnskóla, fannst hann alltaf flottur en eg held ad thad se bæði búið að mökka mikið á honum og í honum :lol:
e30
carhartt
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 70
Joined: Mon 08. Sep 2008 19:16

Re: E39 540i '02

Postby maxel » Sat 10. Sep 2011 17:22

Hann er allavega kominn í góðar hendur núna :thup:
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Re: E39 540i '02

Postby iar » Tue 01. Nov 2011 22:07

Smá update á þennan.. síðan síðast er ýmislegt búið að græja og gera:

- Byrjaði á að setja réttu númerarammana á bílinn. :-)
- Skipti um miðstöðvarmótstöðu
- Skipti um glasahaldarann frammí
- Skipt um fóðringar í framspyrnum
- Skipt um efri spyrnu að aftan
- Skipt um fóðringu í stýrisupphengju
- Dagljósabúnaður virkjaður
- Samlæsingum breytt þannig að þær læsa ekki lengur hurðum þegar bíllinn er kominn af stað (hrikalega pirrandi eins og þetta var áður! Hurðir læstust á ferð og þurfti að ýta tvisvar á fjarstýringu til að opna aðrar hurðir en bílstjórahurðina.. einhver paranoiustilling frá Belgíu :lol: )
- Keypti 17" Style 66 og ný Toyo vetrardekk, þá ætti bíllinn að vera orðinn nokkuð vel skóaður fyrir veturinn. 8)
- Lét sprauta húddið og laga eitthvað smávegis aukalega, m.a. þetta klassíska við bensínáfyllinguna og blettað og lokað í steinkast allan hringinn fyrir veturinn.
- Krómnýru eru komin á og nýtt merki á húddið
- Og svo er það ongoing verkefni að skrúbba Suðurnesjamökkið (sem er ekkert svakalega slæmt en fannst samt smá) sem carhartt er að vísa í úr innréttingunni og gengur bara mjög vel.

Þvílíkt þægilegt að keyra hann eftir fóðringaskiptin og nýju vetrardekkin. Fyrst var tilfinningin eins og að vera með hellu fyrir eyrunum, allt veghljóð hvarf algerlega og svo smooth að keyra! Bíllinn er líka miklu þéttari í akstri, beygum o.þ.h. Það finnst örlítill titringur við bremsun en mjög lítið og líklega ekkert sem tekur því að eltast við fyrr en kemur að því að endurnýja í bremsum.

Svo lenti ég í fúski frá einhverjum fyrri eigenda þegar ég ætlaði að skipta um merkið á húddinu.. þá kom í ljós að merkið hafði verið kíttað á húddið með risastórri svartri kíttisklessu og meira að segja verið sprautað yfir plasttappana sem fara í húddið og merkið á að festast í. Hver gerir svona??!? :hmm: :lol: Svo kom í ljós þegar ég reyndi að fjarlægja kíttið að kíttið var fastara við lakkið en lakkið við grunninn svo í staðinn fyrir að bletta aðeins í húddið fyrir veturinn þurfti að sprauta það allt.. EN þetta er orðið flott núna! :thup:

Allt í allt er bíllinn bara að venjast mjög vel, alveg merkilegt í raun hvað E39 eru vel heppnaðir bílar! Verð að vera sammála því sem hefur komið fram oftar en einu sinni hérna á spjallinu að 540i eru snilldarbílar! :-D

Hér eru svo nokkrar nýlegar myndir... Hef samt ekki náð að taka myndir af honum á Style66 eða með krómnýrunum en það kemur vonandi fljótlega!

Bílastæðaklukkan er farin úr framrúðunni! :lol:
Image

Krókurinn flottur í bakgrunninum...
Image

Image

Stefni á að fríska upp á rauða litinn á bremsudælunum eftir veturinn..
Image

Nýju vetrarskórnir:
Image
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: E39 540i '02

Postby rockstone » Tue 01. Nov 2011 22:11

Flottur hjá þér 8)
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E39 540i '02

Postby Einarsss » Tue 01. Nov 2011 22:19

:drool: langar í hann!
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: E39 540i '02

Postby kalli* » Tue 01. Nov 2011 22:54

Hrikalegur !! Sé alveg óendanlega eftir því að hafa selt minn. :(
Image
'01 e46 320Ci
Seldir - '96 e39 540i | e36 M50B25 Compact | 99' BMW 316i Compact | '91 e34 520i
User avatar
kalli*
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2687
Joined: Sun 29. Mar 2009 14:06

Re: E39 540i '02

Postby cooler » Wed 02. Nov 2011 04:12

Svakalega fallegur gripur hjá þér. :thup:

Hvaða stærð af vetrardekkjum keyptirðu á 17 tommu felgurnar?


Cooler
Cooler
E39 540I///M COSMOSSCHWARZ METALLIC Shadowline
KILLER
Life's Good
User avatar
cooler
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 87
Joined: Thu 26. Nov 2009 01:36

Re: E39 540i '02

Postby Svezel » Wed 02. Nov 2011 08:20

Þetta er bara alveg eins og E39 á að vera; facelift 540ia á M-parallel :thup:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: E39 540i '02

Postby gummz13 » Wed 02. Nov 2011 10:07

Flottur hjá þér, var þessi bíll á akranesi?
Image BMW M5 E39 -[Notkun]
Image BMW 320d E46 -[Notkun]
Image BMW 523i E39 - [Ónýtur]
Image BMW 320i E92 - [Ónýtur]
User avatar
gummz13
Kassabílstjóri
 
Posts: 125
Joined: Fri 30. Oct 2009 15:21
Location: 240 Grindavík

Re: E39 540i '02

Postby F2 » Wed 02. Nov 2011 10:35

Farinn park pera hægra megin að aftan :)
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Re: E39 540i '02

Postby iar » Wed 02. Nov 2011 18:52

cooler wrote:Svakalega fallegur gripur hjá þér. :thup:

Hvaða stærð af vetrardekkjum keyptirðu á 17 tommu felgurnar?


Cooler


235/45R17

gummz13 wrote:Flottur hjá þér, var þessi bíll á akranesi?


Jamm

F2 wrote:Farinn park pera hægra megin að aftan :)


Já þetta er eitthvað spes.. það er mjög dauft ljós og mér sýnist þetta vera eitthvað LED dæmi, semsagt ekki bara að skipta um peru.. :-(
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: E39 540i '02

Postby saemi » Wed 02. Nov 2011 19:02

iar wrote:
cooler wrote:Svakalega fallegur gripur hjá þér. :thup:

Hvaða stærð af vetrardekkjum keyptirðu á 17 tommu felgurnar?


Cooler


235/45R17

gummz13 wrote:Flottur hjá þér, var þessi bíll á akranesi?


Jamm

F2 wrote:Farinn park pera hægra megin að aftan :)


Já þetta er eitthvað spes.. það er mjög dauft ljós og mér sýnist þetta vera eitthvað LED dæmi, semsagt ekki bara að skipta um peru.. :-(


Led fail er bara leiðinlegt. Lenti í þessu í denn að bæði ljósin skemmdust.

Kaupa nýtt $$$
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: E39 540i '02

Postby iar » Wed 02. Nov 2011 20:40

saemi wrote:Led fail er bara leiðinlegt. Lenti í þessu í denn að bæði ljósin skemmdust.

Kaupa nýtt $$$


Það er frekar brútal að þurfa að kaupa ný ljós út af "einni bilaðri peru" :-(

Spurning hvort það sé ekki málið að hita upp bakarofninn og kveikja á lóðboltanum? :lol:
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: E39 540i '02

Postby Danni » Wed 02. Nov 2011 22:12

Ertu búinn að kíkja á rafmagns plöggið í ljósið? Það getur byrjað að tærast og þá gerist svona.

Samkvæmt því sem ég hef lesið á netinu er þetta einmitt algengast hægra megin.

http://www.bimmerfest.com/forums/showth ... p?t=417758
Last edited by Danni on Wed 02. Nov 2011 22:14, edited 1 time in total.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Majestic-12 [Bot] and 45 guests