Aron Andrew wrote:Ég hef aldrei skilið þetta með að sleppa því að borða fyrir æfingu eins og fart talar um, það þarf orku til að taka á því sama hvort maður er of þungur eða ekki. Ég fékk mér alltaf góðann morgunmat fyrir morgunæfingar og náði samt að hlaupa af mér fullt af kílóum...
Ætli pælingin sé ekki sú að fitan utan á líkamanum er uppsöfnuð orka, og því betra að vinna á lagernum áður en meira er pantað inn. Persónulega held ég að þetta sé alveg tvíeggja sverð, ef maður fær sér eitthvað létt (banana) þá tekur maður betur á því, alveg sama hvort maður er feitur fyrir eða ekki. Hinsvegar segja fræðin að ég held að ef maður er feitur og getur æft á tóman maga sé það betra til að létta sig.
Það er allavega klárt mál að öflugur Íþróttamaður sem æfir þarf að borða tvöfaldan til þrefaldan kaloríuskammt á dag til að halda sé gangandi, á meðan að sá feiti ætti alls ekki að borða meira en einfaldan normal kaloríuskammt, og helst minna á meðan lagerinn er tæmdur.



