hvernig er x5 að koma út

Hér skal spjalla um BMW.

hvernig er x5 að koma út

Postby Dorivett » Fri 22. Jul 2011 15:36

þá er ég að tala um eyðslu og rekstrarkostnað og þess háttar, er ekki að spá neinni sérstakri vélarstærð, langar bara að vita reynslusögur frá mönnum sem hafa verið með þessa bíla, og væri ekki verra að fá að vita hvernig þessir bílar eru með miðlungsstærð af fellihýsi aftan í (9,5 feta hús hjá mér). og hvaða vélarstærð mæla menn með að taka. ?
Dorivett
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 470
Joined: Tue 11. May 2004 17:35
Location: ÚTI AÐ SPÓLA FYRIR HORN

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby SteiniDJ » Fri 22. Jul 2011 17:28

E53 eða E70?

Well, 3.0i E70 á heimilinu og vorum með 4.4i E53 einusinni. Góðir bílar, 3.0 er að eyða um 15.0 innanbæjar, sem er 0.4l/100 meira en 530xi Touring. 4.4i var að eyða ~1 - 2 lítrum meir en það. Finnur ekkert fyrir því sem þú ert að draga.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby HAMAR » Sat 23. Jul 2011 01:22

X5 er búinn að reynast mér mjög vel,
eyðslan innanbæjar er á V8 4.4 er ca.15-16 l/100 km. dettur í ca.10 l/100km. utanbæjar.
hef reyndar aldrei dregið neitt en þeir ættu fara létt með öll normal hljólhýsi.

Image
Image

Airstream Trailer
*2002 (May 2001 build) 31 foot Classic Limited
*GVWR (gross vehicle weight rating) 8,300# (have loaded it to 8,900+#)
*Tongue weight 750 to 1,000 pounds (weight distributed)
*Miles towed by X5 = 20,706

http://www.xoutpost.com/bmw-sav-forums/ ... tream.html
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby Axel Jóhann » Sun 24. Jul 2011 02:27

E53 3.0 2002 usa á 3 árum ekinn 140k alternator, vatnsdæla og cam sensor pakki uppá tæpan 100kall. Læt það alveg vera á 3 árum. Plús hann stingur patrol örugglega af! :-D
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205

E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby Dorivett » Sun 24. Jul 2011 12:46

axel það er eitthvað gruggugt ef að hann stingi ekki lampann (patrol) minn af, :)
Dorivett
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 470
Joined: Tue 11. May 2004 17:35
Location: ÚTI AÐ SPÓLA FYRIR HORN

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby HAMAR » Mon 25. Jul 2011 15:28

Einu vélarnar sem maður ætti að spá í eru 4.4 og 3.0d.
Ég skil ekki alveg tilganginn með 3.0 bensínvélinni, eyðir jafn miklu og 4.4 vélin (2004 og yngri).
Rekstrarkostnaðurin hjá mér hefur verið ásættanlegur á þessum tæpu 3 árum sem ég hef átt minn bíl,
eingöngu verið bensín og smurolía fyrir utan að ég þurfti að skipta út loftpúðafjöðrun að framan (sem var dýrt).
Það eina sem get fundið að mínum bíl er að mér finnst fjöðrunin full stíf fyrir normal innanbæjarakstur.
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby raxions » Mon 22. Aug 2011 17:43

HAMAR wrote:Einu vélarnar sem maður ætti að spá í eru 4.4 og 3.0d.

Hvað er 3.0d að eyða innanbæjar?
750iL E38
User avatar
raxions
Kassabílstjóri
 
Posts: 156
Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby ppp » Mon 22. Aug 2011 18:09

raxions wrote:
HAMAR wrote:Einu vélarnar sem maður ætti að spá í eru 4.4 og 3.0d.
Ég skil ekki alveg tilganginn með 3.0 bensínvélinni, eyðir jafn miklu og 4.4 vélin (2004 og yngri).
Rekstrarkostnaðurin hjá mér hefur verið ásættanlegur á þessum tæpu 3 árum sem ég hef átt minn bíl,
eingöngu verið bensín og smurolía fyrir utan að ég þurfti að skipta út loftpúðafjöðrun að framan (sem var dýrt).
Það eina sem get fundið að mínum bíl er að mér finnst fjöðrunin full stíf fyrir normal innanbæjarakstur.

Hvað er 3.0d að eyða innanbæjar?

Engu.
335i e92 (JB4, downpipes og margt fleira gúdderí.)
330d e46 (Mr. X!)
User avatar
ppp
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1145
Joined: Fri 09. Oct 2009 13:41

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby HAMAR » Mon 22. Aug 2011 19:49

ca.13l/100 hef ég heyrt frá 3.0d eiganda.
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby ÁgústBMW » Mon 22. Aug 2011 20:43

raxions wrote:
HAMAR wrote:Einu vélarnar sem maður ætti að spá í eru 4.4 og 3.0d.
Ég skil ekki alveg tilganginn með 3.0 bensínvélinni, eyðir jafn miklu og 4.4 vélin (2004 og yngri).
Rekstrarkostnaðurin hjá mér hefur verið ásættanlegur á þessum tæpu 3 árum sem ég hef átt minn bíl,
eingöngu verið bensín og smurolía fyrir utan að ég þurfti að skipta út loftpúðafjöðrun að framan (sem var dýrt).
Það eina sem get fundið að mínum bíl er að mér finnst fjöðrunin full stíf fyrir normal innanbæjarakstur.

Hvað er 3.0d að eyða innanbæjar?

Pabba bíll er í 10 núna
BMW ///M3 E46
User avatar
ÁgústBMW
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 428
Joined: Tue 08. Jun 2010 23:24

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby ///MR HUNG » Mon 22. Aug 2011 20:50

HAMAR wrote:ca.13l/100 hef ég heyrt frá 3.0d eiganda.

Það finnst mér vera grunsamlega mikil eyðsla fyrir 3.0d vél.
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99

E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469

Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: hvernig er x5 að koma út

Postby Saxi » Mon 22. Aug 2011 22:18

5 ára reynsla af 3.0d á foreldranna heimili. hann stendur í 270 þús km núna. Eyðsla er að meðaltali 10 lítrar en í innanbæjarsnatti er hann í um 12.

Eins og aksturstalan gefur til kynna hefur þessi bíll ekki fengið löng frí en viðhaldi sinnt mjög samviskusamlega. Mér finnst helst brenna við einhverjar smábilanir. Hurðaopnarar eru til dæmis mjög viðkvæmir fyrir frosti og það má búast við að skipta um nokkra sleða fyrir rúður. Eins er búið að skipta tvisvar um takkann til að opna skottlokið.

Undirvagn er líka frekur á viðhald. Hef ekki tölu á öllum þeim fóðringum og stífum sem hafa farið í hann. Geri mér grein fyrir því að aksturinn er mikill en það eru tveir aðrir bílar í svipaðri brúkun á heimilinu og ekki nánda nærri eins mikið viðhald á þeim undirvögnum. Þeir eru reyndar ekki með eins fágaða fjöðrun.

Vélin er ótrúlega áreiðanleg og hefur ekki slegið feilpúst alla þessa kílómetra, bara eðlilegt viðhald. Hins vegar gerðu þeir hjá Bmw þann feil að setja skiptingu í þessa bíla sem á að höndla 380nm þegar vélin er gefin upp 410nm. Síðasta vetur fór skiptingin og einhver rúm hálf milljón með. Sérfræðingarnir á Ljónsstöðum höfðu séð marga svona bíla og vildu meina að dráttur væri ekki fyrir þá. Eftir þetta hefur annar bíll á heimilinu séð um allan hestakerrudrátt.

Einhvernveginn er það samt þannig að þessum bíl fyrirgefst nánast allt því engan bíl hafa þau gömlu átt sem er betri akstursbíll eða þægilegri :)

kv.

*edit

Það er í honum sport fjöðrun sem er í hastari kantinum, myndi frekar taka venjulega ef ég hefði valið.
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 37 guests