Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor - Komin Lausn

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor - Komin Lausn

Postby karelraf » Thu 19. May 2011 23:55

Halló.

Ég fann þennan fína E39 bíl á plani og er að reyna að koma honum í gang eftir smá hlé. Honum virðist samt ekki langa á götuna. Þetta er 96 árgerð af 523 bíl með M52 mótor, (ég held single vanos), sjálfskiptur með steptronic.

Einkennin eru þessi.

Þegar maður ræsir hann virðist hann yfirleitt eðlilegur í 1-2 mínútur...svo fer hann að missa kraft. Stundum virðist kraftleysið til staðar frá fyrstu sek.

Kraftleysið lýsir sér þannig að hann er alveg í Corollugírnum þangað til hann nær rúmlega 3þús snúningum. Þá finnur maður að það bætist verulega í hestaflafjöldann en samt eins og hann nái aldrei fullu afli. Maður finnur þegar maður botnar hann að hann er svona inn/út á milli 3-4500rpm og svo sæmilegur upp úr 4500. En það er náttúrulega alger misþyrming að keyra hann þannig.
En undir 3þús rpm er hann alveg afllaus. Hreinlega kemst ekki upp smá brekku nema í öðrum gír.
Hann virðist ganga á öllum og hægagangurinn virðist vera í lagi, nokkuð jafn og þéttur.
Hann er pínu tregur í gang heitur, en þó ekki slæmur. Ef maður gefur honum í lausagangi virkar allt vel, ekkert hik. Einkennin koma sem sagt fram undir álagi.

það sem hefur verið gert:
nýr CAM skynjari.
2ja ára MAF skynjari, nýhreinsaður.
2ja ára báðir pústskynjarar.
ný hosa frá soggrein að MAF skynjara.
Nýr rafgeymir.

Á einhver góð ráð, hvar er best að byrja að leita til að útiloka allt sem hægt er?

Með kveðju og von um góð viðbrögð.
kv.
Karel Rafnsson
Last edited by karelraf on Fri 03. Jun 2011 16:38, edited 1 time in total.
----------------
Karel Rafnsson

BMW E39 523
BMW 1800
karelraf
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 13
Joined: Mon 09. May 2011 23:39

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby Axel Jóhann » Fri 20. May 2011 00:32

Gæti verið stíflaður hvarfakútur :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby saemi » Fri 20. May 2011 01:56

VANOS bilað
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby oddur11 » Fri 20. May 2011 01:58

bensíndæla?
Mazda 626 '98 R.I.P
BMW e32 730i '93 seldur
BMW e46 318 '99 seldur
BMW e30 335 '89 "Got drift?" seldur
Benz e190 '92 sportliner seldur
BMW e34 525tds seldur
BMW e39 523ia mattsvartur daily seldur
BMW e36 325is
BMW e36 318is seldur
BMW e34 525
User avatar
oddur11
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1351
Joined: Mon 25. Feb 2008 16:45
Location: 109 Breidholt

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby karelraf » Fri 20. May 2011 06:55

Þið leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál.

Ef hvarfakúturinn væri bilaður, væri þá ekki power bandið ónýtt á efri snúningnum líka?

Eins með Vanosið, er ekki rétt að þegar það er bilað heyrist í því í hægagangi?


Þarf að prófa bensíndæluna.
----------------
Karel Rafnsson

BMW E39 523
BMW 1800
karelraf
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 13
Joined: Mon 09. May 2011 23:39

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby karelraf » Fri 20. May 2011 23:26

Smá update.

Fór í kóðalestur og mengunarmælingu í dag.

Bæði Co2 og Lamda gildin eru upp úr þakinu, langt yfir eðlilegum mörkum.

Það eina sem Kóðalesturinn sýndi var RPM sensor fault

Einhverjar hugmyndir. Er farinn að velta því fyrir mér hvort að MAF skynjarinn sé í ruglinu þó hann sé aðeins 2ja ára gamall.
----------------
Karel Rafnsson

BMW E39 523
BMW 1800
karelraf
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 13
Joined: Mon 09. May 2011 23:39

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby slapi » Sat 21. May 2011 06:42

Ef bíllinn er að ganga svona ríkur þá er það venjulega súrefnisskynjarar.
En ég get nátturulega ekkert fullyrt um það þar sem ég er ekki búinn að skoða bílinn.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby karelraf » Mon 23. May 2011 23:04

Prófaði aðra afgasskynjara, einn í einu og það breytti engu :(
----------------
Karel Rafnsson

BMW E39 523
BMW 1800
karelraf
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 13
Joined: Mon 09. May 2011 23:39

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor

Postby ellipjakkur » Thu 26. May 2011 00:27

ég er með svona 523 og var að taka við honum eftir að hann stóð í ár,,

minn lét mjög svipað fyrst frekar máttlaus og vélin að streða við ekki neitt

tók hvarfa kútinn undan og sauð rör beint á milli og setti splunkunýja loftsíu í hann og það gerði gæfu mun er mjög ánægður með bílinn núna ;)
Bmw 325 e30 cabrio '87 (seldur)
Bmw 318 e30 touring (úrbræddur)
ktm 300exc 2stroke :D (selt)
BMW 325 e36 cabrio (seldur)
M.Benz c220 w202 (sold)
KTM 380 2t (out'a here :(
BMW 323 e36 '96 (farinn)
BMW 523 E39 '97
Bmw 535 E34 '89
Honda Cr-f 250 2007
ellipjakkur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 793
Joined: Thu 09. Aug 2007 23:24
Location: Hafnarfjörður

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor KOMIN LAUSN!!

Postby karelraf » Fri 03. Jun 2011 16:38

Jæja

Eftir langa leit og prófanir, nýjan knastásskynjara, nýjan sveifarásskynjara, hreinsun á afgasskynjurum kom loksins í ljós að Loftflæðisskynjarinn var sökudólgurinn. Setti nýjan í og allt eins og það á að vera.

Takk fyrir þau input sem komu.

kv.
Karel.
----------------
Karel Rafnsson

BMW E39 523
BMW 1800
karelraf
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 13
Joined: Mon 09. May 2011 23:39

Re: Hjálp!!!! Kraftlaus E39 523 með M52 mótor KOMIN LAUSN!!

Postby BMW_Owner » Fri 03. Jun 2011 19:12

karelraf wrote:Jæja

Eftir langa leit og prófanir, nýjan knastásskynjara, nýjan sveifarásskynjara, hreinsun á afgasskynjurum kom loksins í ljós að Loftflæðisskynjarinn var sökudólgurinn. Setti nýjan í og allt eins og það á að vera.

Takk fyrir þau input sem komu.

kv.
Karel.



shitt sko hvað þessi helv. skynjari er orsök margra vandamála. :thdown:
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests