Halló.
Ég fann þennan fína E39 bíl á plani og er að reyna að koma honum í gang eftir smá hlé. Honum virðist samt ekki langa á götuna. Þetta er 96 árgerð af 523 bíl með M52 mótor, (ég held single vanos), sjálfskiptur með steptronic.
Einkennin eru þessi.
Þegar maður ræsir hann virðist hann yfirleitt eðlilegur í 1-2 mínútur...svo fer hann að missa kraft. Stundum virðist kraftleysið til staðar frá fyrstu sek.
Kraftleysið lýsir sér þannig að hann er alveg í Corollugírnum þangað til hann nær rúmlega 3þús snúningum. Þá finnur maður að það bætist verulega í hestaflafjöldann en samt eins og hann nái aldrei fullu afli. Maður finnur þegar maður botnar hann að hann er svona inn/út á milli 3-4500rpm og svo sæmilegur upp úr 4500. En það er náttúrulega alger misþyrming að keyra hann þannig.
En undir 3þús rpm er hann alveg afllaus. Hreinlega kemst ekki upp smá brekku nema í öðrum gír.
Hann virðist ganga á öllum og hægagangurinn virðist vera í lagi, nokkuð jafn og þéttur.
Hann er pínu tregur í gang heitur, en þó ekki slæmur. Ef maður gefur honum í lausagangi virkar allt vel, ekkert hik. Einkennin koma sem sagt fram undir álagi.
það sem hefur verið gert:
nýr CAM skynjari.
2ja ára MAF skynjari, nýhreinsaður.
2ja ára báðir pústskynjarar.
ný hosa frá soggrein að MAF skynjara.
Nýr rafgeymir.
Á einhver góð ráð, hvar er best að byrja að leita til að útiloka allt sem hægt er?
Með kveðju og von um góð viðbrögð.
kv.
Karel Rafnsson



