þessi sæti sem voru í E32 er það besta sem ég hef setið í, var samt grátt tauáklæði, en með sér armrest fyrir hvort sæti og rafmagn í öllu. En þessi sport innrétting í E39 er alls ekki langt frá því að vera ennþá þægilegri, þótt það væri reyndar betra að hafa rafmagn í þeim, full flókinn mekkanisminn. allavega hefur engum farþega hjá mér tekist að stilla sætið eins og hann vill hafa það án leiðsagnar
Þessi var að koma úr yfirhalningu hjá Eðalbílum, Flapsar teknir úr soggrein (var 1 brotinn en ekki farinn af stað), webasto endursett (blés alltaf köldu, þurfti ekki annað en að endursetja hana), skipt um útihitanema, skipt um spindla báðumegin að framan, skipt um viftureim, skipt um demparahlífar að framan og skipt um öll glóðakertin. Ágætis reikningur, enda ófáir tímarnir sem fóru í þetta.
búinn að skipta um EGR thermostat, fara í olíuskipti, skipta um öndunarsíu (var alveg stífluð) og stilla handbremsu. áðuren ég skipti um öndunarsíu var hann að eyða rétt rúmlega 10 innanbæjar, 7.4 utanbæjar og 9.2 í blönduðum. Eftir öndunarsíuskipti: get náð honum niður í 5.5 langkeyrslu, 8 innanbæjar (ekki sparakstur) veit ekki með blandaðan akstur ennþá. Get ekki annað en verið sáttur
þetta er EGR vatnslásinn, innri boltinn er algjört hell að ná sama hvaða verkfæri þú notar EDIT tekur bara vacum slönguna úr þá kemstu betur að Hann er oftar en ekki ástæðan fyrir því að bíllinn er lengi að hitna og gengur kaldur eða hann kólnar um leið og þú slærð af
Last edited by Orri Þorkell on Mon 25. Jun 2012 02:55, edited 2 times in total.