Daginn, vantar smá hjálp samband við 523ia bimmann minn..
Nýlega hef ég heyrt lágt tikk inní bílnum og tengist það hraðanum á bílnum. Þegar maður situr í bílstjórasætinu heyrir maður ekki alveg hvaðan það kemur, en farþegamegin kemur það frá vinstri hliðinni. Heyrist líka smá ískur að utan, og virðist þetta þá koma frá vinstra afturhjólinu.
Svo gerist það stundum að nokkrir dynkir koma að aftan vinstra megin, og virðist þetta ekki vera neitt tengt aksturslagi, þetta kemur bara í tíma og ótíma hvort sem maður bremsar eða beygir eða annað...
Lenti í því um daginn að hlífin utan um bremsudiskinn framan/h.m. beyglaðist og flæktist í felgunni og heyrðust þá álíka dynkir, þannig ég reif hana bara af. Hélt að þessir dynkir núna væru þá eins og það og tjakkaði bílinn upp, en það var ekkert að hlífinni þar, og gat ekki séð neinn aðskotahlut..
Byrjaður að halda að þetta gæti verið sjálfskiptingin þetta tikk?
Þetta er hrikalega pirrandi, því það er mjög margt búið að endurnýja í þessum bíl seinasta mánuðinn sem ég hef átt hann, sérstaklega í hjólabúnaði og hef ég ekki hugmynd hvað þetta gæti verið.
Endilega ef þið hafið hugmynd um hvað þetta er deilið því, týpískt að eitthvað svona gerist þegar ekkert verkstæði er opið fyrr en eftir þrjá daga :S
Fyrirfram þökk.
