E39 vandræði...

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E39 vandræði...

Postby Carlos » Sat 23. Apr 2011 18:44

Daginn, vantar smá hjálp samband við 523ia bimmann minn..
Nýlega hef ég heyrt lágt tikk inní bílnum og tengist það hraðanum á bílnum. Þegar maður situr í bílstjórasætinu heyrir maður ekki alveg hvaðan það kemur, en farþegamegin kemur það frá vinstri hliðinni. Heyrist líka smá ískur að utan, og virðist þetta þá koma frá vinstra afturhjólinu.
Svo gerist það stundum að nokkrir dynkir koma að aftan vinstra megin, og virðist þetta ekki vera neitt tengt aksturslagi, þetta kemur bara í tíma og ótíma hvort sem maður bremsar eða beygir eða annað...
Lenti í því um daginn að hlífin utan um bremsudiskinn framan/h.m. beyglaðist og flæktist í felgunni og heyrðust þá álíka dynkir, þannig ég reif hana bara af. Hélt að þessir dynkir núna væru þá eins og það og tjakkaði bílinn upp, en það var ekkert að hlífinni þar, og gat ekki séð neinn aðskotahlut..
Byrjaður að halda að þetta gæti verið sjálfskiptingin þetta tikk?

Þetta er hrikalega pirrandi, því það er mjög margt búið að endurnýja í þessum bíl seinasta mánuðinn sem ég hef átt hann, sérstaklega í hjólabúnaði og hef ég ekki hugmynd hvað þetta gæti verið.

Endilega ef þið hafið hugmynd um hvað þetta er deilið því, týpískt að eitthvað svona gerist þegar ekkert verkstæði er opið fyrr en eftir þrjá daga :S

Fyrirfram þökk.
Carlos
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 18
Joined: Sat 23. Oct 2010 01:12

Re: E39 vandræði...

Postby Alpina » Sat 23. Apr 2011 20:04

Blind skot.. mismunadrifið gæti verið brotið
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: E39 vandræði...

Postby Carlos » Sat 23. Apr 2011 20:49

já, en ætti hljóðið þá ekki að koma meira frá miðjunni? það heyrist langmest í þessu vinstra megin
Carlos
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 18
Joined: Sat 23. Oct 2010 01:12

Re: E39 vandræði...

Postby jon mar » Sat 23. Apr 2011 21:34

Mig myndi nú gruna eitthvað fokk með bremsur eða dust cover fyrst að öllu, svona afþví það er einfaldara en ónýtur drifbúnaður. :)

Þar á eftir væri það spurning með drif, öxulliði og allskonar fjöðrunarbúnað.
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Re: E39 vandræði...

Postby Carlos » Tue 26. Apr 2011 18:40

fór í þetta í dag, tók bremsudisk og dælu af og þá blasti við mér brotið handbremsusystemið, borðarnir molnaðir af og gormarnir búnir að skoppa af. Greinilegt að það hefur ekki farið mikið af pening í viðhald hjá fyrri eiganda.... En mín sök líka, átti að vera búinn að tjekka á þessu fyrr. Get samt prísað mig sælan að þetta sé ekki eitthvað drifvandamál eða í öxlunum. :)
Carlos
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 18
Joined: Sat 23. Oct 2010 01:12

Re: E39 vandræði...

Postby Alpina » Tue 26. Apr 2011 18:43

Jón Mar var með þetta :idea:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: E39 vandræði...

Postby jon mar » Tue 26. Apr 2011 18:53

Alpina wrote:Jón Mar var með þetta :idea:


Það gerist stundum fyrir slys :lol: :mrgreen:
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests