Nú hef ég verið að leita að bíl undanfarnar vikur og því heimsótt töluvert af bílasölum, og ég á bara ekki til orð yfir það hversu lítil fagmennska einkennir þessa stétt. Ég hélt einhvernveginn (vonaði allavega) að mestu jólasveinarnir hefðu skolast út með hruninu en þeir virðast sitja skrambi fastir.
Fyrir það fyrsta getur maður alveg gleymt því að senda fyrirspurnir í tölvupósti, það er svarað í svona 20% tilvika og þegar það er gert er það í einhverjum SMS stíl. Ég hefði skilið það ef það væri svona klikkað að gera, en ég fæ ekki betur séð en að það sé afar rólegt að gera stóran hluta dagsins og lítið mál að skapa einhverja sölu með því að svara fyrirspurnum. Ekki eru símtölin mikið betri, en ég skil ekki að maður þurfi að draga upplýsingar úr þeim með töngum og sölumennirnir hljóma nánast eins og þeir séu að gera manni greiða með því að segja manni eitthvað.
Þetta er þó hátíð miðað við að hitta þessa snillinga þegar maður fer á sölurnar. Ég get talið á fingrum annarrar handar þau skipti sem mér hefur verið heilsað af fyrra bragði og hvað þá að það hafi verið einhver hressilegheit í gangi. Síðan virðist gilda eitthvað hroka attitude í þessari stétt hérna heima sem mér er algjörlega fyrirmunað að skilja hvað á að fyrirstilla - einhver nettur pirringur alltaf eins og maður sé að trufla.
Hvað er eiginlega málið? Af hverju sættir fólk sig við algjöran skort á fagmennsku þegar kemur að því að kaupa vöru sem er oftar en ekki næst dýrasta fjárfestingin á eftir fasteignum? Af hverju er ekki einhver búinn að opna sölu sem gerir þetta af fagmennsku út í fingurgóma og gleypir hreinlega markaðinn? Hvar er metnaðurinn?
Jæja, best að hætta röflinu, varð aðeins að fá að pústa. Er gjörsamlega búinn að gefast upp á þessu liði og mun taka mín viðskipti í gegnum umboðin eða gera þetta sjálfur.

