Bílasalar - handónýtt stétt

Hér skal spjalla um BMW.

Bílasalar - handónýtt stétt

Postby thisman » Sat 02. Apr 2011 19:48

Nú hef ég verið að leita að bíl undanfarnar vikur og því heimsótt töluvert af bílasölum, og ég á bara ekki til orð yfir það hversu lítil fagmennska einkennir þessa stétt. Ég hélt einhvernveginn (vonaði allavega) að mestu jólasveinarnir hefðu skolast út með hruninu en þeir virðast sitja skrambi fastir.

Fyrir það fyrsta getur maður alveg gleymt því að senda fyrirspurnir í tölvupósti, það er svarað í svona 20% tilvika og þegar það er gert er það í einhverjum SMS stíl. Ég hefði skilið það ef það væri svona klikkað að gera, en ég fæ ekki betur séð en að það sé afar rólegt að gera stóran hluta dagsins og lítið mál að skapa einhverja sölu með því að svara fyrirspurnum. Ekki eru símtölin mikið betri, en ég skil ekki að maður þurfi að draga upplýsingar úr þeim með töngum og sölumennirnir hljóma nánast eins og þeir séu að gera manni greiða með því að segja manni eitthvað.

Þetta er þó hátíð miðað við að hitta þessa snillinga þegar maður fer á sölurnar. Ég get talið á fingrum annarrar handar þau skipti sem mér hefur verið heilsað af fyrra bragði og hvað þá að það hafi verið einhver hressilegheit í gangi. Síðan virðist gilda eitthvað hroka attitude í þessari stétt hérna heima sem mér er algjörlega fyrirmunað að skilja hvað á að fyrirstilla - einhver nettur pirringur alltaf eins og maður sé að trufla.

Hvað er eiginlega málið? Af hverju sættir fólk sig við algjöran skort á fagmennsku þegar kemur að því að kaupa vöru sem er oftar en ekki næst dýrasta fjárfestingin á eftir fasteignum? Af hverju er ekki einhver búinn að opna sölu sem gerir þetta af fagmennsku út í fingurgóma og gleypir hreinlega markaðinn? Hvar er metnaðurinn?

Jæja, best að hætta röflinu, varð aðeins að fá að pústa. Er gjörsamlega búinn að gefast upp á þessu liði og mun taka mín viðskipti í gegnum umboðin eða gera þetta sjálfur.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby Einarsss » Sat 02. Apr 2011 20:02

Þoli ekki bílasala almennt.. hvað er pointið með þeim? Eina sem þeir gera er að safna bílum á planið sitt, ljúga að manni um hvað bíllinn sé æðislegur og er milliliður kaupanda og seljanda.. svo þarf að borga þeim fáránlega há sölulaun fyrir að skrifa afsal og senda inn eigandaskipti.


edit

og svo ábyrgjast þeir ekki einu sinni bílinn sem þeir eru að selja.. ef eitthvað klikkar daginn eftir kaup þá er það á miskun seljanda hvort hann taki á sig einhvern kostnað.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby gulli » Sat 02. Apr 2011 20:03

Einarsss wrote:Þoli ekki bílasala almennt.. hvað er pointið með þeim? Eina sem þeir gera er að safna bílum á planið sitt, ljúga að manni um hvað bíllinn sé æðislegur og er milliliður kaupanda og seljanda.. svo þarf að borga þeim fáránlega há sölulaun fyrir að skrifa afsal og senda inn eigandaskipti.

:clap: :clap:
NÁKVÆMLEGA :!:
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby Mr. Jones » Sat 02. Apr 2011 20:03

Þegar ég fór á sölurnar í fyrra að leita að BMW tók ég eftir sérstaklega tvennu, sölumennirnir eru alltaf að prútta fyrir hönd seljandans án þess að vera búnir að tala við hann og hitt að þeir hálf móðgast ef maður býður of lágt og var nokkru sinnum sagt við mig að gleyma þessu en svo voru eigendurnir alveg til í að skoða þetta þegar sölumennirnir fengust loksins til að hafa samband við þá.
    E39 540i "00
    RAV4 "96
    R6 "04
Gamalt.
    Corsa gsi
    Astra gsi
    Kadett gsi
    Calibra
    Conquest tsi
    Formula 400
    Nova SS
    Vetta pacecar
Mr. Jones
Getawaybílstjóri
 
Posts: 504
Joined: Sun 03. Oct 2010 17:03
Location: Vestmannaeyjar

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby ömmudriver » Sat 02. Apr 2011 20:06

Ég er alveg sammála þér og sem betur fer hef ég ekki þurft að eiga mikil viðskipti við bílasölur í gegnum tíðina.

Sem dæmi gerði ég allt sem mögulega hægt var að gera til þess að selja 2006 árg. af Yaris hratt og örugglega á síðasta ári sem kærastan átti. Bíllinn var í algjöru toppstandi, stífbónaður, nýskoðaður, nýsmurður og á nýjum dekkjum. Ég aulýsti hann á barnalandi, hérna, L2c, Geiranum og fór með hann og skráði á Diesel.is, Netbílar.is og á Toyotasalnum hérna suðurfrá. Allir bílasalarnir sögðu að bíllinn myndi seljast hratt þar sem að hann væri í toppstandi og akkúrat það sem fólk væri að leita að. Diesel og Netbílar settu það verð á bílinn sem ég vildi(undir markaðsverði) en ekki Toyotasalurinn þar sem að jú þeir vilja halda verðinu á þessum bílum uppi og var sölumaðurinn ekki til í að setja það verð sem ég vildi setja á bílinn og sagði m.a. að bíllinn myndi ekki seljast á því verði sem ég vildi.

Tveimur mánuðir liðu og ég gafst upp og lækkaði verðið enn meira nema Toyotasalurinn sem neitaði að lækka verðið og var bara með hroka og kjaft. Bíllinn seldist á innan við viku frá lækkuninni og sölumennirnir í Toyota voru kjaftstopp yfir því hvað bíllinn seldist hratt og jafnframt reiðir yfir því hvað ég seldi bílinn á góðu verði.



P.S. Til þess að toppa þetta, þá afhentu bílasalarnir bílinn án leyfis frá mér og án þess að ég væri búinn að fá greiðsluna í hendurnar! Ég þurfti að hringja í sífellu og reka á eftir þeim og alltaf kom "Já peningurinn er á leiðinni". Ég fékk ekki peninginn fyrr en tveimur dögum eftir afhendingu og þá með því að hóta að fara með málið í lögfræðing :o
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby sh4rk » Sat 02. Apr 2011 20:15

Svo svífast þeir einskis líka, veit nefnilega um eitt dæmi þar sem vinnufélagi minn var að leita sér af jeppa og sá einn á einni bílasölunni og fer og talar við bílasalann og vill fá að skoða betur en voða lítill áhugi að hálfu bílasalans þannig að vinnufélagi minn skilur bara eftir nafnið sitt ef seljandinn hefði áhuga á tilboðinu hans, en það varð ekkert úr þessu, en svo er sami jeppi auglýstur í fréttablaðinu af eigadanum sjálfum og vinnufélagi minn fer og verslar bara bílinn og bara sáttur með kaupin, en það líður ekki vika minnir mig þá var bílasalinn búinn að senda lögfræðing á hann og heimta sölulaun því að hann vildi meina að hann hafi komið þessari sölu af stað
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby Freyr Gauti » Sat 02. Apr 2011 20:56

Þau skipti sem ég hef keypt eða selt bíl í gegnum bílasölu hef ég yfirleitt lennt á mjög fínum einstaklingum, en þegar maður hefur verið að skoða bíla og biðja um reynsluakstur eða eitthvað slíkt hefur maður mjög oft lennt á hrokafullum gaurum.
Freyr Gauti
Getawaybílstjóri
 
Posts: 645
Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Location: Akureyri

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby Jón Ragnar » Sat 02. Apr 2011 20:58

Ekki eru fasteignasalar skárri :thdown:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby ömmudriver » Sat 02. Apr 2011 21:32

John Rogers wrote:Ekki eru fasteignasalar skárri :thdown:



Tengdapabbi minn er bílasali og fasteignasali enda algjör skíthæll :thup:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby Jón Ragnar » Sat 02. Apr 2011 21:41

ömmudriver wrote:
John Rogers wrote:Ekki eru fasteignasalar skárri :thdown:



Tengdapabbi minn er bílasali og fasteignasali enda algjör skíthæll :thup:



:lol: :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby gunnar » Sat 02. Apr 2011 22:02

Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af bílasölum og þeirra vinnubrögðum.

Hef líka undanfarin ár forðast að bæði selja og kaupa bíla í gegnum sölur. Hef ekki þurft þess heldur hreinlega.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby jon mar » Sat 02. Apr 2011 23:34

Tvisvar keypt bíl í gegnum bílasölu. Það gekk alveg super bara og mega viðmót. Meira segja kom ég eftir löngu eftir lokun á söluna í annað skiptið og þar var enþá einn starfsmaður, sá var æstur í að hleypa mér í reynsluakstur þó að ég færi ekkert sérstaklega frammá það. Skilaði sér í því að ég keypti í hádeginu daginn eftir :)


Hef hinsvegar lent í því líka að menn vilji ekki hleypa mér í reynsluakstur útaf planinu einu sinni.........og allskonar bulli.
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby srr » Sat 02. Apr 2011 23:36

Sem betur fer þekki ég tvo heiðarlega bílasala.

Kristín Sigurjónsdóttir, vinnur hjá Bílabúð Benna, notuðum bílum, á Bíldshöfða 10
og
Guðbergur Björnsson, vinnur hjá Bílabúð Benna, notuðum bílum, Njarðvík

Mæli eindregið með þeim tveim :thup:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby zazou » Sun 03. Apr 2011 10:12

Mikið af 'tækifæris' fólki í þessari stétt. Bílasali > Remax > ríkisfangssali(sem maður heyrir).
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Re: Bílasalar - handónýtt stétt

Postby -Hjalti- » Sun 03. Apr 2011 11:15

ömmudriver wrote:
John Rogers wrote:Ekki eru fasteignasalar skárri :thdown:



Tengdapabbi minn er bílasali og fasteignasali enda algjör skíthæll :thup:


bæði.... shitt rennur kalt blóð um hans æðar eða ?
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests