Málið er það að núna er þessi bíll í 65% tollaflokki en var það ekki þegar hann var fluttur inn. Þetta er eini Cabrio e46 M3 eftir því sem ég best veit og ef þú vilt eignast e46 M3 cabrio, þá þarftu bara að borga mikið því þetta er besta verðið sem þú getur fengið. Þetta verð næst tæplega við innflutning á sambærilegum bíl.
Ef þér finnst þetta verð of hátt og ert ekki tilbúinn að borga það (geri að sjálfsögðu ráð fyrir betra staðgreiðsluverði) þá munt þú ekki eignast cabrio e46 m3.
Þegar hlutir eru unique og ekkert annað samskonar til og mun ekki vera það nema fyrir mun fleiri $$$ þá geta menn kannski réttlætt svona verð, en hvort e-r sé tilbúinn að borga það er allt önnur saga.

