BMW M3 E46?

Hér skal spjalla um BMW.

Re: BMW M3 E46?

Postby batti » Tue 15. Mar 2011 17:26

Málið er það að núna er þessi bíll í 65% tollaflokki en var það ekki þegar hann var fluttur inn. Þetta er eini Cabrio e46 M3 eftir því sem ég best veit og ef þú vilt eignast e46 M3 cabrio, þá þarftu bara að borga mikið því þetta er besta verðið sem þú getur fengið. Þetta verð næst tæplega við innflutning á sambærilegum bíl.

Ef þér finnst þetta verð of hátt og ert ekki tilbúinn að borga það (geri að sjálfsögðu ráð fyrir betra staðgreiðsluverði) þá munt þú ekki eignast cabrio e46 m3.

Þegar hlutir eru unique og ekkert annað samskonar til og mun ekki vera það nema fyrir mun fleiri $$$ þá geta menn kannski réttlætt svona verð, en hvort e-r sé tilbúinn að borga það er allt önnur saga.
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: BMW M3 E46?

Postby SteiniDJ » Tue 15. Mar 2011 19:54

Til sölu, E39 M5, gott eintak. Verð: 5.3 milljónir.

Held að enginn mun eignast E46 M3 Cabrio hér á landi upp úr þessu.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW M3 E46?

Postby batti » Tue 15. Mar 2011 20:52

SteiniDJ wrote:Til sölu, E39 M5, gott eintak. Verð: 5.3 milljónir.

Held að enginn mun eignast E46 M3 Cabrio hér á landi upp úr þessu.


Sá sem er tilbúinn að borga uppsett verð á þessum umrædda m3 gæti eignast m3 hér á landi.
En innflutningur á svona bíl og öðrum sambærilegum er kannski ekkert voðalega raunhæft árið 2011 nema fyrir mjög efnaða einstaklinga og þá væri jafnvel hægt að gera góð kaup í þessum tiltekna bíl þegar búið er að reikna út hvað innflutningur á öðrum mun kosta.

Sem betur fer er enn til fólk sem á peninga hér á landi og þeir eru talsvert margir.
Kaup á bíl fyrir tæpar 6 mills þykir ekkert fáránlegur hugsunarháttur allstaðar.

Það þýðir ekkert að miða við gamalt gengi og gamla tíma þegar allt lék í lyndi.

Gullúr eina sinnar tegundar til sölu á 500þús, samskonar úr kostar 4500$ í USA. Ef þú vilt eignast það þá er 500þús besti kosturinn þó það hafi bara kostað 300þús fyrir núverandi eiganda og þú vitir það. Þú þarft ekki að kaupa það en erfitt er að bölva verði seljandans.

Þú hlýtur að fatta hvert ég er að fara með þetta. Mér finnst alveg magnað þegar miðað er við innflutningsverð sem er ekki inní myndinni lengur og ætlast til að seljandi taki mið af því.
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: BMW M3 E46?

Postby SteiniDJ » Tue 15. Mar 2011 22:38

Breytir litlu fyrir mig hvað er sett á þennan bíl þegar öllu er á botninn hvolft, er ekki á höttunum eftir E46, M3 eða blæju.

Held að þetta undirstriki bara hversu fúlt ástandið hér heima er orðið!
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW M3 E46?

Postby Aron M5 » Wed 16. Mar 2011 08:23

Hann er þá sennilega bara að fara eiga þennan M3 áfram...
BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

Re: BMW M3 E46?

Postby Benzari » Wed 16. Mar 2011 08:37

batti wrote:Málið er það að núna er þessi bíll í 65% tollaflokki en var það ekki þegar hann var fluttur inn. Þetta er eini Cabrio e46 M3 eftir því sem ég best veit og ef þú vilt eignast e46 M3 cabrio, þá þarftu bara að borga mikið því þetta er besta verðið sem þú getur fengið. Þetta verð næst tæplega við innflutning á sambærilegum bíl.

Ef þér finnst þetta verð of hátt og ert ekki tilbúinn að borga það (geri að sjálfsögðu ráð fyrir betra staðgreiðsluverði) þá munt þú ekki eignast cabrio e46 m3.

Þegar hlutir eru unique og ekkert annað samskonar til og mun ekki vera það nema fyrir mun fleiri $$$ þá geta menn kannski réttlætt svona verð, en hvort e-r sé tilbúinn að borga það er allt önnur saga.


Þetta er ekki rétt.
Út þetta ár er hæsta tollprósentan 52% og á næsta ári 59%.
Sjá 8 grein I kafla.
http://www.althingi.is/altext/139/s/0661.html
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Re: BMW M3 E46?

Postby Nökkvi » Sun 20. Mar 2011 21:20

ÁgústBMW wrote:Það er verið að bjóða pabba skipti á þessum bíl og hann vildi fá að vita hvað svona bílar eru að selja á og hvort það séu einhverjir sem vilja kaupa þá.


Ef pabbi þinn vill virkilega mikið eignast svona bíl og eiga hann lengi þá er sniðugt að reyna að ná honum í skiptum. Bara kynna sér söguna eins vel og hægt er og láta Eðalbíla taka hann í ástandsskoðun.
Ef hann ætlar að taka hann upp í sem skiptimynt og selja hann strax aftur er sennilega ekki hægt að gera mikið vitlausari díl.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests