Svo er eitthvað rafmagnsstýrt vakúmdót sem ég hef ekki hugmynd um hvar var eða hvert fer, og grunar að það sé að valda gangveseninu. En hvað þetta tikk gæti verið veit ég ekki.
Ég margtékkaði að tíminn væri réttur og sneri mótornum örugglega hátt í 10 hringi meðan ég gerði það. Tíminn á heddinu var ca réttur þegar það fór á, leit líka undir það áður en ég setti það á að engir ventlar stæðu niðri án þess að eiga að gera það.
Nóg er af olíu.
Mótorinn var rifinn fyrir mánuði og bíllinn var inni í upphituðum skúr allan tímann með breitt yfir mótorinn.
Er búinn að láta hann 3-4 sinnum í gang, í nokkrar sek, þori ekki að láta hann ganga meira án þess að laga tikkið. Á hann ekki að ná upp smurþrýsting á þessum tíma? Þarf ég að rífa ventlalokið af og hella olíu á þetta allt til að "prime-a" allt svo hann gangi ekki þurr?
Vakúmdótið sést liggja milli tölvuplöggsins og lofthreinsarans. Það liggur niður í einhvern hólk undir bremsuboosternum.



