///MR HUNG wrote:
Þetta er að seljast úti á 200$.
Ég verslaði við Umnitza og fékk mér:
Projector39
6000k 35w xenon
Orion V.2 angel eyes (sami litur og xenonið)
FX-R retrofit
Umnitza nota DJ Auto ljósin (því þau líta talsvert betur út en hin sem Mr. Hung er að selja) og síðan rífa þeir allt í sundur til að setja angel eyes og nýja projectora í (ef þú velur FX-R retrofit. Þetta kostaði mig í kringum 90þús komið. Ég get sagt þér að ég bý úti á landi og keyri oft í svarta myrkri en ég nota aldrei háu ljósin. Framljósin eru það góð. Angel eyes eru svo björt að ég nota þau aðeins sem stöðuljós á daginn í dagsbirtu.
Ég er viss um að Umnitza ljósin séu þau bestu sem þú getur fengið. Hella eru helladýr, looka rosalega vel, en ef þú vilt ekki pissugul angel eyes þá þarftu að mjólka út nokkrum þúsundköllum til viðbótar til að skipta út perunum.
Edit: Það er mikill munur á xenon og halogen. Þú ert væntanlega með halogen. Það er til xenon þar sem maður þarf ekki að hafa projectora, en það er afar slæmur kostur. Xenon er einfaldlega svo mikið bjartara og sterkara að það er best að vera með projectora vegna þess að þeir skera ljósið þannig að það lýsi ekki yfir ákveðna línu (cutoff pattern á ensku). Xenon perur þurfa ballast til að keyra þær, en það fylgir alltaf með öllum xenon settum.
Xenon perur eru líka viðbjóðslega dýrar, en eiga að endast margfalt lengur. Ég ætlaði að kaupa eina um daginn hjá N1 og hún var sett á 14.500kr ef ég man rétt. Ég skellti mér á eBay og keypti 2 pör (4 perur) á um 6000 krónur. Ég er búinn að prófa þær og það er ekkert að þeim.
Hér sérðu muninn á draslinu sem ég var með (svipað og þetta sem Mr. Hung er með:

Svona lítur þetta út frá Umnitza:

Og komið báðum megin á:

