Sumarplön! Hér er listi yfir þá hluti sem mig langar að gera við bílinn í sumar. Ekki ósennilegt að þetta komi til með að breytast, en alltaf gaman að láta sig dreyma. Bíllinn er alveg afskaplega góður eins og hann er í dag. Slær ekki feilpúst. Þetta er listi yfir hluti sem ég tel að munu njóta sín alveg gífurlega vel á Silverstone litnum sem ég er ástfanginn af. Er ekkert króm eftir á honum af viti, en eins og sumir vita þá er ég yfirleitt á móti þannig breytingum. Það er nú ekki alveg satt, tel að þær eigi vel við ef litur bílsins leyfir upp á það (Sorry, en mér finnst svart á svart ofur shadowline sjaldan koma mjög vel út).
Eins og ég skrifaði hér fyrir ofan, þá er ætlunin að ferska upp á innréttinguna og vonast ég til að klára það fyrir sumarið. Ásamt því er á borðinu að fara kaupa svokallað "Intravee II" kerfi, sem leyfir mér að tengja iPod beint við skjáinn í bílnum. En þó svo að bíllinn sé góður í dag (og hefur verið það síðan að ég fékk hann) þá veit maður aldrei með svona bíla. Einn daginn getur allt verið í góðu en þann næsta allt komið út í buskann og eru viðgerðir á bílnum því í algjörum forgangi!

Facelift ljós. Ljósin sem eru á bílnum eru orðin leiðinleg (festingarnar á öðru stefnuljósinu eru líka lélegar). Mig langar helst í OEM ljós ef það yrði ekkert vandamál, þarf að kanna það nánar, en annars koma til greina Projector39 ljós. Umnitza virðist vera maðurinn í þeim málum, en ég hef ekki of góða reynslu á vörum frá honum.

Hamann Lip. Ég sá þetta á ONNO og hef verið ástfanginn af því síðan. Ég er að gæla við að taka lippið í CF, finnst það gera lítið fyrir bílinn ef það er samlitað. Hugsanlega tek ég það svart, en sé ekki beint tilganginn í því ef CF er í boði!

Carbon Fiber diffuser. Mér sýnist diffuserinn á myndinni ekki vera CF, en það breytir þó ekki öllu. Ég þarf að skoða hvað ég passar á bílinn, en hann er með annað pústkerfi sem er allt nema lítið. Hver stútur er 3.5 tommur og því talsvert stærri en OEM. Þetta gerir mér svolítið erfitt fyrir, en farið er að sjá á diffusernum sem er á honum núna útaf hita. En aftur, þetta kemur til með að tóna mjög vel við bílinn. Ég er engin CF dólgur, en tel það koma virkilega vel út á svona smáatriðum.

Felgurnar eru á leið til Bretlands í uppgerð þar.
Nei djók! Þarf að ræða við sprautara hér heima til að sjá hvað hægt er að gera til að fá þær í OEM lit aftur. Bara súrt að hafa þær svona dökk-gráar.

Einnig þarf að kaupa ný dekk við tækifæri. Hef verið að skoða Michelin PS2. Hægt að fá þau sem Runflat, sem myndi henta mér þar sem að ekkert varadekk er í bílnum (Komu almennt M5 með varadekk?). Gangurinn af þeim kostar víst alveg $1300 + gjöld, svo ég ætla að sjá hvað kemur út úr group buy hjá Bílabúð Benna, er svolítið heitur fyrir því.)
Þetta er líklegast ekki allt og sumt. Eitthvað sem mun bæta við eða hverfa af listanum, trúi ekki öðru. Ef menn hafa einhverjar uppástungur þá eru þær vel þegnar, alltaf gaman að heyra hvað öðrum finnst.
