Hehe, já ég er bara orðinn gamall sennilega
Mér finnst bara það að nota þokuljósin að framan þegar það er ekki þoka, svona næsti bær við fólkið sem setur þokuljósin á að aftan og heldur að það sé með kveikt á afturrúðu hitaranum
Bara af því að táknin eru svipuð og það er ekki alveg klárt á hvað allir takkarnir þarna í mælaborðinu gera ...
En jújú, ég skil svosem að öðrum geti fundist þetta töff.
Ég er bara svo hreinn og beinn að ég get ómögulega gert eitthvað sem hefur engan tilgang, eitthvað sem var alls ekki hannað með þetta í huga. Svo getur þetta líka verið óþægilegt fyrir aðra, sem er jú ástæðan fyrir að löggan er að stoppa menn sem eru með þetta kveikt ...
Sæmi stífi... eehhh já eða...