533ia fór í gang áðan
Nýjar bensíndælur og nýr bensíntankur gerðu gæfumuninn
(Gerði einnig 120 þúsund kr gat á bankareikninginn
Ég sá að það dropaði bensíni með einni bensínslöngunni frá tank<->dælu svo ég þarf að skipta um hana.
Það geri ég annað kvöld ásamt því að setja LÆSTA drifið í hann, bolta öxlana á og prufa að hreyfa greyið aðeins

Hann hefur ekki verið hreyfður með eigin vélarafli síðan í byrjun ársins ef ég man rétt.
Þá mun ég geta keyrt hann til suðumeistara sem þarf að laga eitt gat í gólfinu á honum.
Ég er svo loksins búinn að pússa allt gólfið í honum og gera klárt fyrir málningu,,,,þannig að ég get
málað gólfið og sett svo loksins innréttinguna í hann.
Það fer alltaf minnkandi verkefnalistinn á þessum sjaldséða bíl



.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)