



Skipti um BMW merki á húddinu. Það gamla var orðið ansi lúið.

Einnig fór bíllinni í Inspection II hjá Eðalbílum um daginn. Eitt og annað kom í ljós en þó ekkert alvarlegt. Kannski ekki óeðlilegt á 11,5 ára gömlum bíl. Er búinn að laga mest allt sem var að eins og að skipta um bremsuklossa, festa lausa plasthlíf, fá nýjan púða til að tjakka bílinn upp, skipta um kertahettur og setja í nýjan ABS skynjara. Einnig fannst smá sprunga í öðrum gorminum að aftan og ætla ég að taka veturinn í að athuga hvað ég geri í þeim málum.



