e60 kraftlaus

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e60 kraftlaus

Postby Eggert 525 » Sun 16. May 2010 15:14

Sælir strákar.

Bíllinn minn er búinn að standa allan vetur óhreyfður og ég var að ná í hann í gær. Þetta er e60 525D 2004 sem togar virkilega vel og er hörkubíll. Eftir vetrarsetuna er bíllinn hins vegar algerlega kraftlaus. Hvort sem er í upptaki eða þegar hann er kominn á hraða þá er bara eins og bensíngjöfin virki varla. Bíllinn keyrði frá Akureyri til Reykjavíkur og var virkilega furðulegur, hélt ekki hraða á cruise control upp brekkur og skipti sér furðulega. Bíllinn gefur mér líka gula villumeldingu "INCREASED EMISSIONS" ekki viss um að þetta tengist svo sem. Mér dettur í hug að það sé möguleiki að þetta hafi eitthvað að gera með vatn í olíutankinum en annars hef ég ekki hugmynd. Hvað segja spekúlantar hér. Þekkið þið svona vandamál og hvað er til ráða? Ég panta tíma og fer með hann í umboðið í skoðun en það væri gott að geta sagt þeim eitthvað annað en að bíllinn sé bara kraftlaus ef að þið grunið hvað málið sé.

Kveðja Eggert
Eggert 525
Kassabílstjóri
 
Posts: 100
Joined: Thu 28. Jun 2007 19:44

Re: e60 kraftlaus

Postby dabbiso0 » Sun 16. May 2010 15:25

Þetta getur verið langur listi af hlutum.. Mæli bara með að þú farir með bílinn í aflestur.

Ætli að þetta sé ekki bara Fastur EGR ventill.. það er ísí fix
Toyota Rav4 '97 "Special" Seldur :D
e39 530d touring sport 2003 - ///M-(aður) - Seldur :(
dabbiso0
Getawaybílstjóri
 
Posts: 584
Joined: Thu 25. Dec 2008 09:22

Re: e60 kraftlaus

Postby slapi » Sun 16. May 2010 16:35

dabbiso0 wrote:Þetta getur verið langur listi af hlutum.. Mæli bara með að þú farir með bílinn í aflestur.

Ætli að þetta sé ekki bara Fastur EGR ventill.. það er ísí fix


Man ekki eftir neinu tilviki sem tengist bilun í EGR búnaði í BMW.

Hinsvegar er mjög líklegt að armurinn sem stýrir flæðispöðunum inn í afgashúsinu á túrbínunni sé orðinn stirður , frekar algengt vandamál.
Fyrsta skrefið væri vissulega aflestur.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: e60 kraftlaus

Postby Eggert 525 » Wed 19. May 2010 15:18

Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:
Eggert 525
Kassabílstjóri
 
Posts: 100
Joined: Thu 28. Jun 2007 19:44

Re: e60 kraftlaus

Postby Alpina » Wed 19. May 2010 18:18

Eggert 525 wrote:Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:


Erum við ekki að tala um spíssa :|
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: e60 kraftlaus

Postby jon mar » Wed 19. May 2010 18:25

Alpina wrote:
Eggert 525 wrote:Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:


Erum við ekki að tala um spíssa :|


dísill = glóðarkerti
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Re: e60 kraftlaus

Postby ///MR HUNG » Wed 19. May 2010 18:26

Alpina wrote:
Eggert 525 wrote:Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:


Erum við ekki að tala um spíssa :|

Neibb þetta er special edition 8)
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: e60 kraftlaus

Postby Alpina » Wed 19. May 2010 18:27

jon mar wrote:
Alpina wrote:
Eggert 525 wrote:Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:


Erum við ekki að tala um spíssa :|


dísill = glóðakerti

Ég veit.. en efa að slíkt ágætis tólgarprik sé uppistaða brennslunnar í brunahólfinu ..... nema við kaldræsingu
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: e60 kraftlaus

Postby ///MR HUNG » Wed 19. May 2010 18:41

jon mar wrote:
Alpina wrote:
Eggert 525 wrote:Kom í ljós að 2 af 6 kertum voru orðin ónýt og bíllinn er kominn í samt lag aftur. :thup:


Erum við ekki að tala um spíssa :|


dísill = glóðarkerti

Og voru þau að svíkja alla leið í bæinn :o
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Re: e60 kraftlaus

Postby jon mar » Wed 19. May 2010 19:29

ég man eftir einum gömlum stórum þreyttum LC sem var í fjölskyldunni minni fyrir mörgum árum. Það var sérlega vonlaust farartæki þangað til skipt var um glóðarkertin í kvikindinu. Maður spyr sig, enda veit ég afar fátt um dísel bifreiðar.
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests