Sælir strákar.
Bíllinn minn er búinn að standa allan vetur óhreyfður og ég var að ná í hann í gær. Þetta er e60 525D 2004 sem togar virkilega vel og er hörkubíll. Eftir vetrarsetuna er bíllinn hins vegar algerlega kraftlaus. Hvort sem er í upptaki eða þegar hann er kominn á hraða þá er bara eins og bensíngjöfin virki varla. Bíllinn keyrði frá Akureyri til Reykjavíkur og var virkilega furðulegur, hélt ekki hraða á cruise control upp brekkur og skipti sér furðulega. Bíllinn gefur mér líka gula villumeldingu "INCREASED EMISSIONS" ekki viss um að þetta tengist svo sem. Mér dettur í hug að það sé möguleiki að þetta hafi eitthvað að gera með vatn í olíutankinum en annars hef ég ekki hugmynd. Hvað segja spekúlantar hér. Þekkið þið svona vandamál og hvað er til ráða? Ég panta tíma og fer með hann í umboðið í skoðun en það væri gott að geta sagt þeim eitthvað annað en að bíllinn sé bara kraftlaus ef að þið grunið hvað málið sé.
Kveðja Eggert
