slapi wrote:
Ingvarinn wrote:
gunnar wrote:
Þarft nú eitthvað annað í húddið til að ná þessu held ég

Tja svona 3-400 þús og þá ætti hann að ná um 8-900 whp og um 12-1400nm úr þessum mótor sem hann er með gæti verið meira fer allt eftir því hvað hann finnur notað heima í þetta og hvað hann þarf að panta að utan .....
Ha? , væri fínt að fá sundurliðun á þeim kostnaði , að þér ólöstuðum finnt mér þetta lítill aur þó svo um amerískan hlunkamótor sé að ræða. Ef þetta stenst er maður þá í vitlausri deild ?

Jú þetta er nefnilega ekki svo dýrt stæðsti kostanaðurinn er að versla BLOWER en hann er hægt að finna heima fyrir um 200 þús allavega hef ég séð einn auglýstann fyrir CHEVY nýlega man reyndar ekki hvar en hann átti að vera góður fyrir um 7bar fer líka allt eftir því hvernig þú gírar þessa reimdrifnu blowera hversu mikið þeir blása en þetta er gömul blöndungsvél sem hann er með og þar að leiðandi lítið rafmagns vesen sem er dýrasti parturinn í þessu túrbó dæmi á BMW..
Það er einfaldlega ódýrara að tjúna þessa Amerísku mótora en ég er ekki að segagja að þeir séu jafn skemmtilegir og hinir þýsku en það er misjafnt hvað mönnum finnst...
En á þessari vél sem hann er með þá er það að ná þjöppunni í 8.5-9.5:1 og skoða jafnvel knastás og svo er það annað millihedd og blower þetta fæst allt notað heima og svo þarf þetta að fá bensín og þar sem ég veit ekki hvort blöndungurinn sem hann er með dugi í þetta þá gæti verið að hann þurfi stærri blöndung en svo er það þetta týpiska með hedd bolta og aðra smá hluti sem gæti þurft að panta að utan...
En ef þetta á að endast þá þarf að fara í kjallarann líka og það er dýrt og má búast við að þurfi mikið að vesenast í mótornum en hann gætti þolað þetta í um 20þús km fer allt eftir hvernig bíllinn er notaður...
Ég er reyndar að miða við að vinnan á bakvið þetta sé ekki reiknuð inní þetta en það á að vera hægt að gera þetta fyrir undir 500þús
Nýr Blower kostar um 3500 dollara í usa og var það um 200 þús fyrir kreppu en aftur þetta verð er háð því að það fáist allir þessir hlutir heima á svona ca því verði sem það kostaði nýtt fyrir kreppu úti
En og aftur það er ÓDÝRARA að tjúnna Amerískt......