Bæði góðar fréttir og slæmar.....góðu fréttirnar eru að ég missi ekki aðstöðuna

komst að samkomulagi við eigandann um að laga múrverkið að innan og gera gólfið snyrtilegt eftir 6 mánuði. Bara gott að halda aðstöðunni !
Kvöldið byrjaði frekar kjánalega.....hafði keyrt í brotið gler eða eitthvað álíka og þess vegna var sprungið þegar að ég ætlaði í skúrinn. Tjakkurinn tekinn fram og þá er bíllinn auðvitað það lágur að enginn venjulegur tjakkur kemst undir hann með sprungið dekk. Hvar er næsta bensínstöð.....frekar nálægt en með sprungið framdekk er svuntan hættulega nálægt jörðu, svei mér þá ef ég náði ekki að skrapa upp hundaskít á leiðinni. Pumpað í 35psi og svo undir með tjakkinn, er núna með eina glænýja felgu undir að framan

Ég tók þennan eina stimpil úr í kvöld, var eitthvað að naga mig hversu mikið bras það var að koma honum í og vildi skoða þetta betur. Fann smá "hak" í stangarlegu, svona smá nudd á horninu sem hefur komið þegar ég var að banka stimpilinn inn. Fæ 2 nýjar sem fyrst frá MM, nenni ekki að standa í einhverjum bakþönkum yfir svona smotteríi. Í gær tókst mér að klúðra ásetningu fyrstu hringjanna, er með ógeðslega stífan support hring fastan í röngu spori og ekki með réttu verkfærin til að pilla hann úr. Skoða það betur þegar um helgina ef ég finn tíma, annar sonurinn er með lungnabólgu og það gengur algjörlega fyrir. En það er hvergi clearance vandamál, er búinn að máta á öllum cylindrum og allt gengur upp

læt eina mynd fylgja bara svona til að halda hefðinni við.

Þess má til gamans geta að þetta er skelfilega þétt með þessum hringjum, var vel smurt inn fyrir ísetningu og eftir að stimpillinn hefur verið keyrður 360° þá eru veggirnir skraufaþurrir.