bebecar wrote:
Einhvern veginn efa ég að M6 verði legend eftir 20 ár... ég sé fyrir mér einhverja allt aðra stöðu - gæti trúað að eftir 20 ár verði svona bílar algjör peningahýt sem kostir gríðarlegar fjárhæðir í rekstri en fáist á klink. Það kemur margt þar til, sjáið t.d. fyrir ykkur hvernig þetta verður í eyðslu samanborið við bíla eftir 20 ár (og hvað mun bensínið kosta þá?), plús varahlutir í gríðarlega flóknan og öflugan bíl sem verður búin að fara í gegnum misjafnar hendur eftir því sem verðið lækkar, sirka E39 M5 meðferð sinnum 4 á leiðinni niður eigendaskalann.
En næstu 5-7 ár munu hinsvegar leiða það í ljós hvort svona bílar hafi hreinlega mekkaníska og tæknilega getu til að vera almennilega fúnkerandi eftir 20 ár.
Nú er þetta ekki eitthvað sem er altalað en flestir þessir kappar frá síðustu 6-7 árum eru ekki bílar sem reiknað er með að muni endast mikið meira en 20 ár. Það er t.d. mat Porsche verkfræðinganna að þessi bílar verði hreinlega búnir á því, mekkanískt, tölvulega og rafmagnslega fyrir þann tíma og það muni ekki svara kostnaði að halda þeim gangandi jafnvel þó t.d. sé reiknað með að hægt verða að nota "soft" lausnir fyrir tölvurnar.
Þannig að ef þú ætlar að fá þér V10 aftur, þá er örugglega best að drífa í því bara

Þetta er nú frekar svartsýn framtíð Ingvar. Tækniundur dagsins í dag verður eitthvað sem bílskúrsdundarar geta gert sjálfír í framtíðinni enda í raun auðveldara að laga tölvudót en mechanískt ef þú hefur aðgang að kóðanum. T.d. sögðu allir að það yrði aldrei hægt að fokka í tölvunni á E85, en nú er MrX farinn að hræra í þessu að vild (reyndar fyrir 2 árum) og menn swappa þessu left and right í E30. Kóðarnir verða aðgengilegir öllum eftir nokkur ár held ég.
Ástæðan fyrir því að ég myndi taka M6 frekar en M5 er að þetta er týpískur bíll sem að efnaðir kallar kaupa en keyra ekkert. Þekki nokkur þannig dæmi. Þannig að eftir 5-6ár verður hægt að finna topp eintök fyrir sanngjarnt verð.
In the end er M5/M6 bara mechanískur bíll, stjórnað af tölvum. Það er ekki eins og þetta sé eitthvað "out of this world".
Fyrir 20 árum kvörtuðu allir bifvélavirkjar yfir þessum "tölvubílum", electrónískar innspítingar o.s.frv... maður þarf að vera tölvunarfræður til að geta unnið sem bifvélavirki o.s.frv... í dag er bara hlegið af svona commentum.